Ragnheiður Fossdal, frambjóðandi Borgarahreyfingarinnar, er fremst á myndinni.
Landssamband hestamannafélaga boðaði til fundar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 20. apríl þar sem mættu
fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til þings. Haraldur Þórarinsson, formaðu LH, kynnti þingmönnum tilgang og
markmið sambandsins og skýrði í megindráttum starfssemi þess.
Landssamband hestamannafélaga boðaði til fundar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 20. apríl þar sem mættu
fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til þings. Haraldur Þórarinsson, formaðu LH, kynnti þingmönnum tilgang og
markmið sambandsins og skýrði í megindráttum starfssemi þess.
Allir stjórnmálaflokkarnir höfðu áður fengið sendan spurningalista með sjö spurningum frá LH, sem varða hagsmuni hestamanna. Óskað
var eftir svörum við öllum spurningunum. Á fundinum fór Haraldur yfir spurningalistann og svaraði fyrirspurnum frá frambjóðendum, sem sýndu
málinum mikinn áhuga. Svör flokkanna verða birt hér á heimasíðu LH um leið og þau berast.
Hér með birtast svör frá Borgarahreyfingunni:
INNGANGUR:
Spurningar til stjórnmálaflokka frá Landsambandi hestamannafélaga fyrir alþingiskosningarnar 2009.
Landssamband hestamannafélaga (LH) er þriðja stærsta sérsambandið innan ÍSÍ. Reynslan sýnir að um þrír til fjórir
aðilar fylgja hverjum þeim sem skráður er í félagi í hestamannafélag. Félagar í LH eru nú um 12.000 sem
þýðir að um 35.-40.000 manns stundi hestamennsku reglulega hérlendis.
Landsmót hestamanna er einstakur íþróttaviðburður og sá eini á Íslandi sem dregur að sér hátt í 15 þúsund
gesti, þar af er um fjórðungur erlendir gestir sem sækja Ísland gagngert heim vegna viðburðarins. Hestamennska er ein fjölskylduvænasta
íþrótt sem um getur. Í hestamennsku þekkist ekki kynslóðabil, allir geta stundað hestamennsku saman. Allir finna eitthvað við sitt
hæfi og getu; íþróttakeppni, gæðingakeppni, útreiðar, náttúruskoðun eða að eiga rólega stund með hestum
sínum eftir amstur dagsins.
Í aðdraganda kosninga vorið 2009 fer stjórn Landsambands hestamanna fram á það við þá sem bjóða fram lista til alþingis að
þeir svari nokkrum spurningum er varða hagsmuni hestamanna.
Svör Borgarahreyfingarinnar eru svohljóðandi:
1. Er þinn flokkur tilbúinn til þess að tryggja í vegalögum að reiðvegir séu
flokkaðir þannig að réttur hestamanna sé tryggður á ákveðnum (götum) vegum og þá um leið umferð mótorknúinna
ökutækja bönnuð nema sem um getur í 5. gr. a. 1.mgr. umferðalaga?
Greinargerð: Fallið hafa dómar sem eru þess eðlis að þeir tryggja ekki umferð og öryggi hestamanna á
þeim vegum sem þeim eru ætlaðir sér í lagi er átt við akstur vélknúinna ökutækja einkum torfæruhjóla.
Svar Borgarahreyfingarinnar:
Borgarahreyfingin stendur fyrir: réttlæti siðferði og jafnrétti. Öryggi allra landsmanna er afar mikilvægt og við teljum að ökutæki og
umferð hesta eigi að vera aðskilin báðum til hagsbóta. Við munum styðja lög sem stuðla að slíkum umbótum.
2. Árlega skapast gjaldeyristekjur upp á 12 til 14 milljarða króna í kringum íslenska hestinn og
hestatengda ferðaþjónustu. Er þinn flokkur tilbúinn að beita sér fyrir auknu fé til reiðvegamála t.d. ½ til 1% af þeim
gjaldreyri sem hestamennskan skapar?
Greinargerð: Á undanförnum árum hefur fé til vegamála aukist stórlega og ber að þakka
það. Hins vegar hefur þeim sem stunda hestamennsku fjölgað stórlega á undanförnum árum og þar með þörfin fyrir
reiðvegi einnig. Á síðasta ári var sótt um fjármagn að upphæð 300 milljónir til reiðveganefndar LH en einungis er til
ráðstöfunnar á samgönguáætlun 2007 til 2010 um 60 milljónir á ári. Dugir það fé vart til viðhalds
núverandi reiðvega hvað þá nýlagna.
Svar Borgarahreyfingarinnar:
Borgarahreyfingin hefur skýr markmið er varðar lýðræðisumbætur og að gripið verði þegar í stað til
neyðarráðstafana í þágu heimila og fyrirtækja. Einnig að trúverðug rannsókn á íslenska efnahagshruninu eigi sér
stað strax. Þessi mál eru mikilvægust í dag og Borgarahreyfingin getur ekki tekið afstöðu til málsins á þessum tímapunkti.
Persónulega finnst mér þessi ósk sanngjörn og mundi styðja hana í venjulegu árferði.
3. Telur þinn flokkur ástæðu til að færa reiðvegi frá umferðarþungum akvegum?
Greinargerð: Í dag liggja flestir reiðvegir samsíða þungum umferðaræðum bæði innan
þéttbýlis sem utan. Á þessum reiðvegum er oft mikil umferð ríðandi fólks einkum í næsta nágrenni við
þéttbýlið.
Svar Borgarahreyfingarinnar:
Svar Borgarahreyfingarinnar er það sama og fyrir spurningu 2. Persónulega finnst mér þetta vera forgangsmál til að stuðla að auknu öryggi
hestamanna, hestanna og einstaklinga í umferðinni.
4. Er þinn flokkur tilbúinn að beita sér fyrir því að hestaíþróttir verði
viðurkenndar sem sérstök námsbraut í framhaldsskólakerfinu, þannig að þeir sem ljúka þar námi öðlist réttindi
til t.d. tamninga, þjálfunar og að taka að sér og leiða hópa í ferðamennsku á hestum ?
Greinargerð: LH bindur miklar vonir við samstarf sitt og Fjölbrautaskóla Suðurlands um rekstur tveggja ára
námsbrautar sem menntamálaráðherra heimilaði, en þar er reynt að finna grundvöll til reksturs tveggja ára almennrar hestabrautar
þar sem nemenur útskrifast sem hestasveinar eða tamningarsveinar. Gengur rekstur þessarar brautar vel og lofar góðu. Nú er mikil vöntun á
fólki til starfa tengdum íslenska hestinum. Finnst okkur þetta því vera í anda þess sem mjög er til umræðu í
menntamálum þ.e. að koma á verklegu námi þar sem ekki þarf að búa til eftirspurnina. Þá má minna á að
íslenski hesturinn tengist mjög menningu okkar Íslendinga og er þetta því einnig sögu og menningartengt nám.
Svar Borgarahreyfingarinnar:
Svar Borgarahreyfingarinnar er það sama og fyrir spurningu 2. Persónulega finnst mér að hestaíþróttir eigi að vera viðurkenndar sem
sérstök námsbraut í framhaldsskólakerfinu.
6. Er þinn flokkur tilbúinn eftir kosningar til að skoða skattalegt umhverfi hestamennskunnar með það
að markmiði að minnka kostnað þeirra sem stunda hestamennsku?
Greinargerð: Mikil óánægja er innan hestahreyfingarinnar með misjafna álagningu fasteignagjalda á
hesthús þar sem þau eru ýmist flokkuð í A eða C flokk, þ.e. eftir því hvort þau standa á lögbýli eða innan
þéttbýlis. Stjórn LH telur að það gæti verið til bóta að lækka skatta á vissum þáttum tengdum
hestamennsku og reyna þannig að ná niður kostnaði og um leið að gera viðskipti tengdum hestamennskunni sýnilegri. Lækkun kostnaðar í
greininni eykur frekar á nýliðun í greininni og er þá sérstaklega horft til fjölskyldufólks.
Svar Borgarahreyfingarinnar:
Borgarahreyfingin vil einfalda lagaumhverfið, koma á jafnræði á öllum sviðum mannlífs á Íslandi. Þar er skattalegt umhverfi
hestamennskunnar ekki undanskilið.
7. Er þinn flokkur tilbúinn til að beita sér fyrir lagabreytingu þannig að allir þeir sem eiga og
rækta íslenska hestinn sitji við sama borð þegar kemur að ákvarðanatöku m.a. um ræktunarmarkmið íslenska hestsins og á hvaða
rannsóknir tengdar íslenska hestinum skuli lagðar áherslur á, á hverjum tíma?
Greinargerð: Í dag er þetta þannig að í lögum er kveðið á um að þú verðir
að vera lögbýlingur til að geta setið í Fagráði en þar eru ákvarðanir teknar um ræktunarmarkmið og þróunarstarf
í hrossarækt. Í dag eru 60 - 70% þeirra sem stunda hrossarækt ekki lögbýlingar heldur búa í þéttbýli og
finnst félögum innan LH það algerlega ótækt að mismuna fólki með þessum hætti þar sem það er heimilt að halda hestinn
í þéttbýli.
Svar Borgarahreyfingarinnar:
Borgarahreyfingin vil einfalda lagaumhverfið, koma á jafnræði á öllum sviðum dýralífs á Íslandi.
8. Er þinn flokkur tilbúinn að beita sér fyrir því að LH njóti sömu meðferðar af
hálfu ríkisvaldsins og t.d. önnur félagasamtök sem ríkið styrkir til mótahalds um landið?
Greinargerð: Við rekstur síðustu þriggja landsmóta hefur verið greitt til svæða og í
löggæslukostnað milli 40 - 50 milljónir sem er að mati okkar alltof há upphæð þar sem við þurfum að skattleggja okkar
félagsmenn og aðdáendur íslenska hestsins til að halda þessar fjölskyldu og íþróttahátíðir sem landsmót eru og eru
einnig snar þáttur í menningu okkar. Á sama tíma eru haldnir aðrir íþróttaviðburðir þar sem allur undirbúningur
mótssvæða er greiddur af ríki og sveitarfélögum og öllum boðið frítt inn.
Svar Borgarahreyfingarinnar:
Borgarahreyfingin stendur fyrir: réttlæti siðferði og jafnrétti. Þetta mál verður skoðað í því ljósi.