Frá Kynbóta- og Fræðslunefnd Sörla

Ágúst Sigurðsson hrossaræktandi í Kirkjubæ og fyrrverandi landsráðunautur Bændasamtaka Íslands í hrossarækt heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni „Ræktun í Kirkjubæ“ á fræðslukvöldi Sörla, Sörlastöðum miðvikudaginn 16. febrúar kl. 20:00. Ágúst Sigurðsson hrossaræktandi í Kirkjubæ og fyrrverandi landsráðunautur Bændasamtaka Íslands í hrossarækt heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni „Ræktun í Kirkjubæ“ á fræðslukvöldi Sörla, Sörlastöðum miðvikudaginn 16. febrúar kl. 20:00.

Hrossaræktin í Kirkjubæ er landsþekkt og byggir á gömlum grunni. Ágúst mun fara yfir sviðið í víðu samhengi, söguna, hrossin, stefnuna og framtíðina. Umræður og fyrirspurnir að framsögu lokinni. Án efa skemmtilegt og fræðandi kvöld framundan.

Kaffi og kleinur í boði.
Aðgangseyrir 500 krónur.

Kynbóta- og fræðslunefnd Sörla