Fréttatilkynning: stolnir hnakkar

Að gefnu tilefni viljum við minna eigendur Ástundar hnakka á að allir hnakkar frá árinu 2004 og lofthnakkar frá árinu 1999 eru merktir með raðnúmeri og eigenda skráning á sér stað við sölu.

Að gefnu tilefni viljum við minna eigendur Ástundar hnakka á að allir hnakkar frá árinu 2004 og lofthnakkar frá árinu 1999 eru merktir með raðnúmeri og eigenda skráning á sér stað við sölu.

Mælst er til þess að fólk tilkynni skriflega þegar eigenda skipti eiga sér stað og tilkynni jafnframt til okkar ef Ástundar hnökkum hefur verið stolið. Eigendasögu Ástundar hnakka er hægt að nálgast hjá Ástund.

Mikið hefur verið um stuld á reiðtygjum undanfarið og ber að hafa það í huga þegar notaðar vörur eru keyptar.

Verum á varðbergi.

Bestu kveðjur,

Ástund

S: 568 – 4240

astund@astund.is