Á uppskeruhátíð Fáks um helgina voru afreksknapar og afrekssjálfboðaliðar heiðraðir. Að venju bauð Fákur öllum þeim sem hafa starfað fyrir félagið til hátíðarinnar. Sigvaldi kokkur galdraði fram dýrindis mat og Eyjólfur veislustjóri sá um að halda mönnum við efnið. Á uppskeruhátíð Fáks um helgina voru afreksknapar og afrekssjálfboðaliðar heiðraðir. Að venju bauð Fákur öllum þeim sem hafa starfað fyrir félagið til hátíðarinnar. Sigvaldi kokkur galdraði fram dýrindis mat og Eyjólfur veislustjóri sá um að halda mönnum við efnið.
Á uppskeruhátíð Fáks um helgina voru afreksknapar og afrekssjálfboðaliðar heiðraðir. Að venju bauð Fákur öllum þeim sem hafa starfað fyrir félagið til hátíðarinnar. Sigvaldi kokkur galdraði fram dýrindis mat og Eyjólfur veislustjóri sá um að halda mönnum við efnið.
Brokkkórinn kom öllum í jólaskap með englasöng og Flosi Ólafsson fór á kostum eins og við mátti búast af þeim strigakjafti. Síðan voru súper sjálfboðaliðar heiðraðir sem og afrekssknapar Fáks. Hinir taktföstu og fasmiklu piltar í hljómsveitinni Síðasti sjens með Jens Einarsson í broddi fylkingar sáu um danstónlistina og dunaði dansinn fram eftir nóttu.
Þeir sem voru heiðraðir:
Íþróttanefnd Fáks hélt fjölmennasta íþróttamót ársins þar sem 627 skráningar voru á Reykjavíkurmótinu. Í Íþróttanefnd eru:
Björn Þór Björnsson
Davíð Matthíasson
Drífa Daníelsdóttir
Leifur Arason
Maríanna Gunnarsdóttir
Rúnar Bragason
Sæmundur Ólafsson
Þormóður Skorri Steingrímsson
Einnig fengu starfsmenn dómhús sem og þulir knús, koss, blómvönd og lófaklapp fyrir að starfa á öllum fjórum stóru mótunum sem Fákur hélt á árinu. Þetta voru alls 18 keppnisdagar sem fóru í þessi fjögur stóru mót á árinu enda voru sumir að hugsa um að koma bara með svefnpokann sinn og prímus því það tæki því ekki að fara heim til að sofa.
Anna Sigurðardóttir
Erla Jóhannsdóttir
Guðrún Edda Bragadóttir
Þulir:
Auður Möller
Sóley Möller
Sólveig Ásgeirsdóttir
Framtak ársins
Elísabet Reynhardsdóttir var heiðruð fyrir framtak ársins en hún grjóthreinsaði reiðstíga í Víðidalnum með hrífu að vopni þegar henni blöskraði seinagangur Reykjavíkurborgar við að grjóthreinsa reiðstíga í nágrenni Víðidalsins. Dugnaðarforkur sem lætur verkin tala.
Félagsmálatröll Fáks 2008
Þá var einnig félagsmálatröll Fáks heiðrað fyrir fórnfúst starf í þágu félagsins. Kom það fáum á óvart að Maríanna Gunnarsdóttir skyldi verða þessa heiðurs aðnjótandi í ár. Maríanna hefur starfað mikið fyrir Fák á síðustu áratugum þó hún sé ung að árum, bæði í stjórn félagsins, í stjórn LH og er algjör sérfræðingur þegar kemur að mótahaldi. Takk Maríanna fyrir allar þær vinnustundir sem þú hefur lagt af mörkunum til að efla félagslíf í Fáki.
Hæsta dæmda kynbótahrossið ræktað og í eigu félagsmans.
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu, ræktaður og í eigu Gunnars Arnarsonar
Gaumur er undan Orra frá Þúfu og Hildu frá Garðabæ.
Gaumur er sjö vetra og stóð efstur á landsmótinu í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri og fékk hann 8,69 í aðaleinkunn, sköpulag. 8,13 og hvorki minna en 9,05 fyrir hæfileika.
Afreksknapar
Margir Fáksknapar áttu farsælt keppnisár og voru félaginu til sóma. Á uppskeruhátíðinni voru Íslandsmeistarar, landsmótssigurvegarar, efnilegasti knapi Fáks og afreksknapar Fáks heiðraðir.
Íslandsmeistarar:
Sigurður V Matthíasson: Íslandsmeistari í fimmgangi og gæðingaskeiði í meistaraflokki
Teitur Árnason: Íslandsmeistari í 150 m skeiði og einnig fimmfaldur Íslandsmeistari í unglingaflokki
Valdimar Bergstað: Íslandsmeistari í fimmgangur ungmenna, slakataumatölti ungmenna, gæðingaskeiði ungmenna og samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum í ungmennaflokki
Þórdís Erla Gunnarsdóttir: Íslandsmeistari í slakataumatölti í 1 flokki.
Landsmótssigurvegarar:
Árni Björn Pálsson í A-flokki gæðinga
Sigurbjörn Bárðarson í 250 m skeiði
Viðar Ingólfsson í tölti
Efnilegasti knapi Fáks 2008
Teitur Árnason náði eintökum árangri á keppnisvellinum á árinu. Einnig er ástundun hans og framkoma til mikillar fyrirmyndar og á Teitur eflaust eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni.
Helsti árangur Teits í keppnum í ár en listinn er helmingi lengri ef ætti að telja upp allan hans keppnisárangur í ár.
SEXFALDUR ÍSLANDSMEISTARI 2008:
- Íslandsmeistari í fjórgangi unglinga, einkunn 7,07
- Íslandsmeistari í fimmgangi unglinga, einkunn 6,93
- Íslandsmeistari í gæðingaskeiði unglinga, einkunn 7,75
- Íslandsmeistari í 100m skeiði ungmenna, 7,61 sek
- Íslandsmeistari í 150m skeiði fullorðinna, 14,44 sek
- Íslandsmeistari í samanlögðu unglinga
- 3. sæti á Íslandsmóti í tölti unglinga, einkunn 6,90
*FJÓRFALDUR REYKJAVÍKURMEISTARI 2008:
*TVENN SILFURVERÐLAUN Á NORÐURLANDAMEISTARAMÓTI 2008:
*SAMANLAGÐUR SIGURVEGARI SKEIÐLEIKA SKEIÐFÉLAGSINS 2008
*GÆÐINGAMÓT FÁKS OG ÚRTAKA FYRIR LANDSMÓT 2008:
- 1. sæti unglingaflokkur, einkunn 8,59
- 1. sæti 150m skeið, tími 15,22 sek
- 5. sæti A flokkur gæðinga opinn, einkunn 8,56
*LANDSMÓT 2008:
- 4. sæti unglingaflokkur, einkunn 8,61
- 3. sæti 150m skeiði, tími 15,08 sek
Afrekssknapar Fáks:
Hulda Gústafsdóttir
*Þriðja sæti í fimmgangi í meistaraflokki á Íslandsmóti
*Fjórða sæti í gæðingaskeiði í meistarflokki á Reykjavíkurmóti
*Áttunda sæti í A-flokki gæðinga á gæðingamóti Fáks
* Fjórða sæti í 100 m skeiði á gæðingamóti Fáks
* Sjötta sæti í fjórgangi á Norðurlandamóti
Sigurbjörn Bárðarson
*Sigurvegari í A-flokki gæðinga á gæðingamóti Fáks
*Sigurvegari í 250 m skeið á gæðingamóti Fáks
*Reykjavíkurmeistari í fjórgangi í meistaraflokki
*Reykjavíkurmeistari í gæðingaskeiði í meistaraflokki
*Reykjavíkurmeistari í 250 m skeiði
Sigurður V Matthíasson
*Íslandsmeistari í fimmgangi í meistaraflokki
*Íslandsmeistari í gæðingaskeiði í meistaraflokki
*Reykajvíkurmeistari í fimmgangi meistaraflokki
*Reykjavíkurmeistari í slaktaumatölti 1 flokki
*Annað sæti í fimmgangi 1 flokki á Reykjavíkurmóti
Valdimar Bergstað
Íslandsmeistari í:
*Fimmgangur ungmenna
*Slaktaumatölti ungmenna
*Gæðingaskeiði ungmenna
*Samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum í ungmennaflokki
*Annað sæti í fimmgangi ungmenna á Norðurlandamóti
Viðar Ingólfsson
*Sigurvegari í tölti á landsmótinu
*Sigurvegari í 100 m skeið á Gæðingamóti Fáks
*Reykjavíkurmeistari í 100 m skeiði
*Reykjavíkurmeistari í tölti
* Annað sæti í tölti í meistaraflokki á Íslandsmóti
Þórdís Erla Gunnarsdóttir
*Íslandsmeistari í slaktaumatölti
*Reykjavíkurmeistari í tölti í 1. flokki
*Þriðja sæti í tölti 1. flokki á Reykjavíkurmóti
*Annað sæti í tölti 1. flokki á gæðingamóti Fáks
*Sjöunda sæti í B-flokki á Gæðingamóti Fáks
Knapi Fáks 2008
Árni Björn Pálsson
*Landsmótssigurvegari í A-flokki gæðinga
*Sigurvegari í B-flokki gæðinga á gæðingamóti Fáks
*Reykjavíkurmeistari í fimmgangi 1. flokki
*Annað sæti í A-flokki gæðinga á gæðingamóti Fáks
*Annað sæti í tölti í 1. flokki á Íslandsmóti
*Sjöunda sæti í B-flokki gæðinga á landsmóti
Hestamannafélagið Fákur vill enn og aftur þakka öllu því góða fólki sem kemur að félagsstarfi í Fáki og óskar knöpum til hamingju með glæsilegan árangur á árinu.
Kveðja frá Fáki