Hesturinn og fólk með fötlun

Íþróttasamband fatlaðra og Hestamannafélagið Hörður, Mosfellsbæ standa fyrir ráðstefnu um hestamennsku fyrir fólk með fötlun laugardag 11.febrúar kl. 10.00 – 16.00. Íþróttasamband fatlaðra og Hestamannafélagið Hörður, Mosfellsbæ standa fyrir ráðstefnu um hestamennsku fyrir fólk með fötlun laugardag 11.febrúar kl. 10.00 – 16.00.

Íslenski hesturinn hefur reynst vel við þjálfun og endurhæfingu fólks með fötlun.  Hestaíþróttir eru keppnisgrein á ólympíumótum fatlaðra og á alþjóðaleikum Special Olympics og á Íslandi er verið að þróa keppnisform fyrir fólk með fötlun.

Markhópur ráðstefnu eru þeir sem unnið hafa að þessum málum og aðrir sem áhuga hafa.

10.00 – 12.00     Félagsheimili Hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ

10.00 – 10.15     Kynning á verkefnum starfshóps um þessi mál og  dagskrá námskeiðs.
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, frkvstj. Fræðslu og útbreiðslusviðs ÍF
10.15 – 10.35     Kynning á sjúkraþjálfun á hestbaki 
Guðbjörg Eggertsdóttir og Þorbjörg Guðlaugsdóttir, sjúkraþjálfarar Æfingastöðvar SLF    
10.35 - 11.00     Kynning á starfi fyrir fatlaða innan Hestamannafélagsins Harðar 
Auður Sigurðardóttir, formaður fræðslunefndar fatlaðra
                       Kynning á leiðtoganámskeiðum - Þórhildur Þórhallsdóttir, Hestamennt
11.00 – 11.20     Kynning á knapamerkjakerfi - Sigrún Sigurðardóttir, reiðkennari
11.20 –11.40      Kynning á hlutverki hestsins & félagslegur þáttur 
Ásta Pétursdóttir, geðhjúkrunarfræðingur
11.40 – 12.00     Spurningar og umræður
12.00 – 13.00     Hádegisverður
13.00 – 15.00     Reiðhöll Hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ
Sjúkraþjálfun á hestbaki - Stutt kynning
Kynning á keppnisfyrirkomulagi - Helstu atriði kynnt
15.00 – 16.00     Lok námskeiðs og samantekt

Þátttökugjald er kr. 3.000. -   Innifalið er hádegisverður og kaffi.

Vinsamlega staðfestið skráningu fyrir þriðjudag 7 febrúar 2012 í netfang;
annak@isisport.is        Íþróttasamband fatlaðra
audurs@gmail.com    Hestamannafélagið Hörður