Hinrik og Glymur á toppnum

Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal.
Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal.
Þá er fyrri umferð í fimmgangi lokið á úrtökumóti fyrir Heimsmeistaramótið í Austurríki. Það eru þeir Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal sem standa efstir með einkunnina 7,27. Þá er fyrri umferð í fimmgangi lokið á úrtökumóti fyrir Heimsmeistaramótið í Austurríki. Það eru þeir Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal sem standa efstir með einkunnina 7,27.

Í öðru sæti er Árni Björn Pálsson á Aris frá Akureyri með einkunnina
7,07 og fast á hæla honum kemur Reynir Aðalsteinsson á Sikli frá Sigmundarstöðum með einkunnina 7,03.

Í ungmennaflokki stendur efstur Kári Steinsson á Funa frá Hóli með einkunnina 6,43.

Næst á dagskrá er keppni í fjórgangi og hefst hann klukkan 14:30.

Hér að neðan eru niðurstöður úr fyrri umferð:

1     Hinrik Bragason / Glymur frá Flekkudal  7,27
2     Árni Björn Pálsson / Aris frá Akureyri  7,07
3     Reynir Aðalsteinsson / Sikill frá Sigmundarstöðum  7,03
4     Viðar Ingólfsson / Aspar frá Fróni  6,60
5     Edda Rún Ragnarsdóttir / Hreimur frá Fornusöndum  6,57
6     Kári Steinsson / Funi frá Hóli  6,43