,,Idol“ keppni í sýningu ræktunarbúa

Hægt er að vinna glæsilegan Sony Ericsson W660i gsm tónlistarsíma með því að taka þátt í svonefndri idol kosningu í sýningu ræktunarbúa í kvöld. Það er Síminn sem gefur vinninginn.Hægt er að vinna glæsilegan Sony Ericsson W660i gsm tónlistarsíma með því að taka þátt í svonefndri idol kosningu í sýningu ræktunarbúa í kvöld. Það er Síminn sem gefur vinninginn.

Hægt er að vinna glæsilegan Sony Ericsson W660i gsm tónlistarsíma með því að taka þátt í svonefndri idol kosningu í sýningu ræktunarbúa í kvöld. Það er Síminn sem gefur vinninginn. Kosningin fer þannig fram að tiltekin símanúmer birtast á risaskjánum við keppnisvöllinn og verður eitt númer fyrir hvert ræktunarbú. Áhorfendur - eða þeir sem heima sitja og vita hvaða bú eru með sýningu - hringja í númerið sem tilheyrir því ræktunarbúi sem þeim þykja skara fram úr.  Símanúmer hvers og eins sem hringir inn fer síðan í pott sem dregið er úr að lokinni símakosningu. Gsm síminn verður afhentur vinningshafanum í kvöld.