Líflandsmót - skráning í kvöld

Skráning á Líflandsmót æskulýðsdeildar Fáks verður í kvöld milli kl. 18 og 19. Skráning á Líflandsmót æskulýðsdeildar Fáks verður í kvöld milli kl. 18 og 19.
Skráning verður í Reiðhöllinni í Víðidal þriðjudaginn 10. apríl frá kl.18.00 til 19.00. Einnig verður tekið á móti skráningum í síma 567 0100, 820 1111, 820 1117 og 898 8445 gegn greiðslu með kreditkorti á sama tíma.
Eftir auglýstan tíma verður ekki tekið á móti skráningum.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

Pollaflokkur (2002 og síðar, teymdir/ríða sjálfir)
- tölt

Barnaflokkur (1999-2002)
- tölt og fjórgangur

Unglingaflokkur (1995-1998)
- tölt, fjórgangur og fimmgangur

Ungmennaflokkur (1991-1994)
- tölt, fjórgangur og fimmgangur

Mótið verður svo sunnudaginn 15. apríl. Dagskrá og ráslistar verða birtir á vefmiðlum hestamanna og á www.fakur.is.