Opinn landsliðsfundur 12.júlí

Guðmundur Guðmundsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta.
Guðmundur Guðmundsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta.
Þriðjudaginn 12.júlí nk. mun Guðmundur Guðmundsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta flytja fyrirlestur á opnum fundi íslenska landsliðsins í hestaíþróttum. Þriðjudaginn 12.júlí nk. mun Guðmundur Guðmundsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta flytja fyrirlestur á opnum fundi íslenska landsliðsins í hestaíþróttum.

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum ÍSÍ, 3.hæð, og hefst stundvíslega kl.17:00.

Guðmundur hefur náð gífurlega góðum árangri með landsliðið og því verður fróðlegt að hlusta á fyrirlestur hans þar sem hann mun m.a. fjalla um undirbúning fyrir keppni og kortleggja leiðina til sigurs. 

Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta meðan húsrúm leyfir, ókeypis aðgangur.

Landsliðsnefnd LH.