Ráðstefna um lyfjamál íþróttahreyfingarinnar

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur standa fyrir ráðstefnu um lyfjamál þann 26. janúar kl.17:30-20:30 í Háskólanum í Reykjavík.
Ráðstefnan er hluti af WOW Reykjavik International Games 2017.

Þetta er einstakt tækifæri til þess að fá að heyra um eitt stærsta málefni líðandi stundar í íþróttaheiminum og framtíðarhorfur í þeim málaflokki. Mjög áhugaverðir fyrirlesarar munu vera með erindi:

• Fyrrum Tour de France hjólreiðamaðurinn Michael Rasmussen hefur viðurkennt stórfellda lyfjamisnotkun á meðan á ferlinum stóð. Hann keppti á sama tíma og Lance Armstrong og því afar áhugavert að heyra erindi þessa fyrrum hjólreiðamanns.

• Rannsóknarblaðamaðurinn Hajo Seppelt gerði heimildamyndir sem þóttu sanna skipulagt lyfjamisferli í Rússlandi. Lyfjahneykslið sem komst í hámæli í nóvember árið 2014, hafði áhrif á alla heimsbyggðina, þá sérstaklega hvað varðar Ólympíuleikana í Ríó 2016.

• Dr. Ron Maughan er sérfræðingur í íþróttanæringarfræði og fæðubótarefni og hefur leitt þann málaflokk hjá Alþjóðaólympíunefndinni (IOC) frá árinu 2002. Hann mun fjalla um hætturnar við notkun fæðubótarefna í sínu erindi. Hvað ber íþróttamönnum að varast og hafa í huga þegar þeir neyta fæðubótarefna?

Skráning fer fram hér: http://skraning.marathon.is/pages/rigskraning/?iw_language=is_IS

Nánari dagskrá má sjá hér á vefsíðu RIG (http://rig.is/index.php/radstefna).

Verðið á ráðstefnuna er 4.900 krónur og er kvöldverður innifalinn.


Nánari upplýsingar veitir Birgir Sverrisson, verkefnastjóri Lyfjaeftirlits ÍSÍ, birgir@isi.is, 514-4022.