Skráning á Kvennatöltið í fullum gangi!

Skráning er hafin á Kvennatöltið sem fer fram í reiðhöllinni í Víðidal nk. laugardag, 13. apríl. Skráning fer eingöngu fram í gegnum www.sportfengur.com gegn greiðslu með greiðslukorti. Á mótinu er boðið upp á keppni í fjórum styrkleikaflokkum svo allar konur ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Skráning er hafin á Kvennatöltið sem fer fram í reiðhöllinni í Víðidal nk. laugardag, 13. apríl. Skráning fer eingöngu fram í gegnum www.sportfengur.com gegn greiðslu með greiðslukorti. Á mótinu er boðið upp á keppni í fjórum styrkleikaflokkum svo allar konur ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Í byrjendaflokki er sýnt hægt tölt og svo tölt á frjálsri ferð, ekkert snúið við. Í hinum þremur flokkunum er sýnt hefðbundið töltprógramm þ.e. hægt tölt, snúið við, tölt með hraðabreytingum og svo greitt tölt. Þulur stýrir keppendum í öllum flokkum. 

Leitast er við að skapa skemmtilega og þægilega stemmingu þar sem konur njóta sín í keppni á jafnréttisgrundvelli.
Flokkarnir eru:
Byrjendaflokkur, Minna keppnisvanar, Meira keppnisvanar og Opinn flokkur. Nánari lýsingar á flokkunum er að finna á Facebook undir viðburðinum „Kvennatöltið.“
Hafi knapi sigraði í einhverjum flokki skal viðkomandi færa sig upp í næsta flokk fyrir ofan, sama á við hafi knapi komist þrisvar í A-úrslit í tilteknum flokki. Mótið er opið fyrir allar konur 18 ára og eldri, miðað er við ungmennaflokkinn.

Vegleg verðlaun eru í boði, m.a. glæsilegir verðlaunagripir og flott aukaverðlaun. Að auki verður glæsilegasta parið í hverjum keppnisflokki valið og hlýtur það sérstök verðlaun. Glæsilegasta parið í opna flokknum hlýtur t.d. Drottningarferð með Íshestum.

Aðalstyrktaraðilar mótsins eru Topreiter og Mustad. Allur ágóði af mótinu mun renna til góðgerðarmála.

Hér er að finna leiðbeiningar um skráninguna en skráningargjaldið er kr. 4.800:

Skráningin stendur til miðnættis 9. apríl nk.
Til að skrá þarf að fara inn á www.sportfengur.com og velja þar "Skráningarkerfi."
Þar undir velur maður:
-Skráning
-Mót
-Velur hestamannafélagið Fák
-Fyllir út umbeðnar upplýsingar (ATH. að fylla út öll stjörnumerkt svæði)
-Þar neðst, í "velja atburð" velurðu Kvennatöltið
-Svo hakarðu við þinn keppnisflokk (Ath. Byrjendaflokkur velur "Annað") og velur upp á hvora hönd þú vilt byrja.
-Smellir svo á "setja í körfu"
-Ef þú ætlar að skrá fleiri hesta heldurðu áfram að skrá á sama hátt í næsta glugga
-Þegar þú hefur skráð þig og þinn hest eða hesta og ætlar ekki að skrá fleiri, þá smellirðu á "Vörukarfa" uppi í horninu hægra megin
-Ferð yfir skráningu þína og smellir á "Áfram" ef allt er rétt
-Næst er að fylla inn upplýsingar um greiðanda
-Ferð yfir pöntun þína og skilmála, muna að haka við "samþykki skilmála"
ATH. EINGÖNGU ER TEKIÐ VIÐ GREIÐSLU MEÐ KORTUM - notið þann lið.
-Þá kemurðu næst inn á greiðslusvæði kreditkorta og fyllir inn upplýsingar þar og smellir á "Greiða núna."
-Kvittun mun berast á skráð netfang - passið að fara vel yfir netföng svo þau séu rétt!
-Skráning er ekki staðfest nema greiðsla hafi borist.

Hvetjum allar konur til að taka þátt í þessu skemmtilega móti! Hittumst hressar í Víðidalnum.
Dagskrá verður send út þegar ljóst er hversu margar skráningarnar verða, en forkeppni mun fara fram eftir hádegi og úrslit um kvöldið.