Stórmót á Melgerðismelum

Opið Stórmót hestamanna verður haldið á Melgerðismelum 19.-21. ágúst.  Opið Stórmót hestamanna verður haldið á Melgerðismelum 19.-21. ágúst. 

Keppt verður í :

  • A-flokki, B-flokki, ungmenna-, unglinga- og barnaflokki i og verður forkeppnin með þrjá inni á vellinum í einu. 
  • Tölt, með tvo inni á velli í forkeppni.
  • 100m skeið, 150m skeið og 250m skeið.
  • 300m stökk og 300m brokk.
Félögin áskilja sér rétt til að fella niður greinar ef þátttaka verður ekki næg.

Peningaverðlaun verða í boði í kappreiðum 1. verðlaun 15 þús. -  2. verðlaun 10 þús. og 3. verðlaun 5 þús. kr. 

Skráning er á lettir@lettir.is og lýkur skráningu miðvikudaginn 17. ágúst. Fram þarf að koma IS númer hests og nafn, kt. og nafn eiganda og kt. og nafn knapa ásamt í hvaða keppnisgrein er verið að skrá í. Í Tölti þarf að taka fram uppá hvora hönd riðið verður.

Skráningargjald kr. 2.000- fyrir hverja grein greiðist inn á bankar. 0302-26-15841, kt. 430269-6749 og greiða þarf í síðasta lagi miðvikudaginn 17. ágúst.

Mótið verður jafnframt gæðingakeppni Hestamannafélaganna Funa og Léttis.

Funi og Léttir.