Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2011. Sérstök áhersla verður lögð
á öryggismál á ferðamannastöðum, verkefni þar sem heildrænt skipulag og langtímamarkmið eru höfð að leiðarljósi
og aðgengi fyrir alla.
Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2011. Sérstök áhersla verður lögð
á öryggismál á ferðamannastöðum, verkefni þar sem heildrænt skipulag og langtímamarkmið eru höfð að leiðarljósi
og aðgengi fyrir alla.
Ferðamálastofa byggir umhverfisstefnu sína á sjálfbærri og ábyrgri ferðamennsku enda er náttúra Íslands sú auðlind sem
ferðaþjónustan á Íslandi byggir á til framtíðar. Mikilvægt er að byggja upp innviði sem geta tekið á móti vaxandi
fjölda ferðamanna, tryggt öryggi þeirra eftir bestu getu og boðið upp á nauðsynlega þjónustu. Jafnframt þarf að gæta þess
að allar áætlanir og framkvæmdir á ferðamannastöðum séu byggðar á vandaðri greiningu og rannsóknum og unnar af mikilli
varkárni og virðingu fyrir viðkvæmri náttúru Íslands og sögu. Hönnuðir og skipuleggjendur ferðamannastaða þurfa því
að hafa næmt auga fyrir því hvort, og þá hvar og hvernig, mannvirkjum er valinn staður þannig að þau skerði ekki ásýnd hans
en ýti fremur undir sérstöðu staðarins og þá upplifun sem ferðamaðurinn sækist eftir.
Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2010. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.
1. Styrkir til smærri verkefna:
Veittir verða styrkir til smærri verkefna til úrbóta í umhverfismálum. Hámarksupphæð hvers styrks verður 500 þúsund
krónur og er hann ætlaður fyrir efniskostnaði, áætlanagerð og/eða hönnun. Ekki er veittur styrkur fyrir eldsneyti, fæðiskostnaði eða
vinnuframlagi við framkvæmdir.
2. Styrkir til stærri verkefna:
Veittir verða styrkir til úrbóta í umhverfismálum á ferðamannastöðum og uppbyggingar á nýjum svæðum fyrir ferðamenn.
Styrkupphæð getur að hámarki orðið 50% af kostnaðaráætlun, þó aldrei hærri en 10 milljónir. Hægt verður að
áfangaskipta verkefnum og styrkveitingu í 3-5 áfanga á jafnmörgum árum. Hægt er að sækja um styrki fyrir áætlanagerð
og/eða hönnunarvinnu ásamt undirbúningsrannsóknum. Við skipulag og hönnun mannvirkja er höfð til hliðsjónar “Menningarstefna í
mannvirkjagerð” sem gefin var út af Menntamálaráðaneytinu í apríl 2007 og skipulagslög nr. 123/2010. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu
mannvirkja eða aðrar framkvæmdir verður skipulag, fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir. Styrkþegi er ábyrgur fyrir eðlilegu
viðhaldi og rekstri svæðis og mannvirkja er tengjast viðkomandi verkefni eftir að framkvæmdum lýkur.
Allar umsóknir skulu innihalda:
a. Hnitmiðaða en vandaða verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti
b. Kostnaðar- og verkáætlun
c. Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki viðkomandi yfirvalda vegna verkefnisins
d. Teikningar af mannvirkjum, þar sem það á við, og/eða skriflegt samþykki byggingarfulltrúa
e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og húsráðenda
Ath! Nánari leiðbeiningar og umsóknareyðublöð má finna á upplýsingasíðu fyrir umsóknir um styrki
Hverjir geta sótt um:
Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum. Við úthlutun verður m.a. tekið mið af
ástandi og álagi á svæði, og mikilvægi aðgerðanna út frá náttúruverndarsjónarmiðum. Einnig verður tekið
tillit til þess hvort viðkomandi verkefni nýtur þegar fjárstuðnings opinberra aðila. Ekki verður sérstaklega litið til dreifingar verkefna eftir
landshlutum.
Hvar ber að sækja um:
Umsóknareyðublöð er að finna á upplýsingasíðu fyrir umsóknir um styrki. Þar eru jafnframt leiðbeiningar um hvernig skal sækja
um.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5500 eða með vefpósti
sveinn@icetourist.is.
Umsóknir um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum
Áður en ráðist er í gerð styrkumsókna er nauðsynlegt að kynna sér neðangreint efni:
• Leiðbeiningar Ferðamálastofu við gerð styrkumsókna (Powerpoint)
• Menningarstefna í Mannvirkjagerð
• Ný Skipulagslög nr. 123/2010
• Aðgengi fyrir alla bæklingurinn
• Handbók um merkingar (PDF 8,6 MB)
Fylla þarf út tvenns konar umsókn:
1. Rafræn umsókn hér á vefnum með grunnupplýsingum
Opna rafræna umsókn
2. Umsóknarbað og fylgigögn
Umsóknarblað með öllum grunnupplýsingum, hnitmiðaðri lýsingu á verkefni o.fl.
Leiðbeingar við útfyllingu: Byrjið á að vista eyðublaðið á eigin tölvu, fyllið síðan eyðublaðið út á
skjánum og gætið þess að vista að nýju.
Opna umsóknareyðublað (PDF)
Fylgigögn sem senda þarf með umsóknarblaði:
a. Verkefnalýsing. Ítarleg greinargerð með rökstuðningi og myndum
b. Kostnaðar og verkáætlun
c. Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki viðkomandi yfirvalda vegna
verkefnisins
d. Teikningar af mannvirkjum, þar sem það á við, og/eða skriflegt samþykki
byggingarfulltrúa
e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og húsráðenda
Umsóknarblað ásamt fylgigögnum skal senda bæði á geisladisk og útprentaða á skrifstofu Ferðamálastofu, Geirsgötu 9, 101
Reykjavík merkta “Umhverfisstyrkur”.
Síðasti póststimpill er 20. desember 2010