Sýnikennsla í Faxaborg

Á miðvikudaginn 10.apríl n.k. kl. 20.30 verður haldin sýnikennsla með Jakobi Sigurðssyni sem segir frá og sínir þjálfunaraðferðir sem hann notar. Jakob þarf vart að kynna, hann er einn okkar besti keppnis- og sýningarknapi. Var valinn íþróttaknapi 2012, m.a. tvöfaldur Íslands meistari.

Ekki missa af þessu frábæra tækifæri sem þarna gefst.

Að lokinni sýnikennslu verður kynning á hinni nýju keppnisgrein Töltfimi. Trausti Þór Guðmundsson mun þar miðla af sinni alkunnu snilld. 
Miðaverð er kr. 2.500 , börn 6-12 ára kr. 1.000, yngri enn 6 ára frítt innifalið í miðaverði er happdrættismiði og eru margir góðir folatollar í vinning.
T.d. undir Abraham f. Lundum, Blæ f. Hesti, Blæ f. Torfunesi, Dyn f. Hvammi, Fálka f. Geirshlíð, Hákon f. Ragnheiðarstöðum, Huginn f. Haga, Leikni f. Vakurstöðum, Sólon f. Skáney, Straum f. Skrúð, Takt f. Stóra Ási og Þyt f. Skáney.

Allur ágóði rennur til reiðhallarinnar Faxaborgar. 

Allir velkomnir
Stjórn Faxaborgar