Teitur Árnason efnilegasti knapinn

Efnilegasti knapinn 2008 er Teitur Árnason. Hann keppti í unglingaflokki á árinu. Venjan hefur verið sú að velja þennan knapa úr ungmennaflokki, nema sterk rök styðji annað. Var það svo í þetta skiptið.Efnilegasti knapinn 2008 er Teitur Árnason. Hann keppti í unglingaflokki á árinu. Venjan hefur verið sú að velja þennan knapa úr ungmennaflokki, nema sterk rök styðji annað. Var það svo í þetta skiptið. Efnilegasti knapinn 2008 er Teitur Árnason. Hann keppti í unglingaflokki á árinu. Venjan hefur verið sú að velja þennan knapa úr ungmennaflokki, nema sterk rök styðji annað. Var það svo í þetta skiptið.

Árangur Teits var framúrskarandi. Hann var í fremstu röð í skeiðkeppni á árinu og atti þar kappi við fullorðna. Bestum árangri í skeiði náði hann á hesti sem hann hefur þjálfað og byggt upp sjálfur sem slíkan. Hann náði frábærum árangri á Íslandsmóti, og stóð sig vel á öðrum mótum sem hann keppti á.