Um 6000 manns við setningu Landsmóts

Um sex þúsund manns voru viðstaddir formlega setningu Landsmóts hestamanna á Gaddstaðaflötum á Hellu í blíðskaparveðri í kvöld. Um 500 knapar og hestar þeirra tóku þátt í hópreið allra hestamannafélaga á landinu.Um sex þúsund manns voru viðstaddir formlega setningu Landsmóts hestamanna á Gaddstaðaflötum á Hellu í blíðskaparveðri í kvöld. Um 500 knapar og hestar þeirra tóku þátt í hópreið allra hestamannafélaga á landinu.

Um sex þúsund manns voru viðstaddir formlega setningu Landsmóts 
hestamanna á Gaddstaðaflötum á Hellu í blíðskaparveðri í kvöld. Um 500 
knapar og hestar þeirra tóku þátt í hópreið allra hestamannafélaga á 
landinu. Á eftir fánaberum riðu knapar í viðhafnarbúningi og 
fyrirsvarsmenn íslenskrar hestamennsku. Í fylkingarbrjósti voru einnig 
ráðherrar úr ríkisstjórninni, Geir H. Haarde forsætisráðherra, 
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Einar K. Guðfinsson 
landbúnaðarráðherra, Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni 
Mathiesen fjármálaráðherra, auk Sturlu Böðvarssonar, forseta Alþingis. 
Fluttar voru setningarræður og Garðar Cortes stjórnaði fjöldasöng. Mikil 
stemming er á mótssvæðinu og búist við miklum fjölda gesta á svæðið um 
helgina, enda hápunktar mótsins framundan og veðurútlit gott.