Uppfærð dagskrá Landsmóts

Landsmótið á Vindheimamelum er nú rétt handan við hornið og hefst eftir rúma viku. Nauðsynlegt var að gera smávægilegar breytingar á dagskrá og því gefur mótsstjórn út nýja dagskrá sem finna má hér og á vefnum okkar undir 'Dagskrá'. Landsmótið á Vindheimamelum er nú rétt handan við hornið og hefst eftir rúma viku. Nauðsynlegt var að gera smávægilegar breytingar á dagskrá og því gefur mótsstjórn út nýja dagskrá sem finna má hér og á vefnum okkar undir 'Dagskrá'.

Helstu breytingarnar eru þær að skeiðið er nú á fimmtudagskvöldi, ræktunarbúin á föstudagskvöldi og síðan var nauðsynlegt að byrja fyrr á dómum kynbótahrossa sökum mikillar þátttöku og hefjast dómar því strax sunnudaginn 26. júní.

Biðjum við gesti og knapa að kynna sér dagskrána vel og vera með allt á hreinu áður en haldið er af stað í Skagafjörðinn.

Eigið góða daga og sjáumst á Vindheimamelum!