Útflutningur hrossa hefst á ný 15.september

Stefnt er að því að útflutningur hrossa hefjist á ný 15. september n.k. eftir fjögurra mánaða hlé vegna faraldurs smitandi hósta. Stefnt er að því að útflutningur hrossa hefjist á ný 15. september n.k. eftir fjögurra mánaða hlé vegna faraldurs smitandi hósta. Enn ber nokkuð á veikinni víða um land og hefur smitið m.a. viðhaldist í stóðhestagirðingum og öðrum hópum, sérstaklega þar sem veikir hestar hafa komist í snertingu við móttækilega hesta. Komið hefur í ljós að hestar sem hafa gengið í gegnum veikina geta tekið hana aftur. Margt bendir þó til að  hrossastofninn sé hægt og sígandi að byggja upp nokkra mótstöðu gegn þessum sjúkdómsvaldi og að óbeint smit sé ekki eins öflugt og áður.
 
Aukin þekking á orsökum sjúkdómsins og bætt mótstaða gegn honum skapa nú tækifæri til að rjúfa smitleiðir og halda smithættu í lágmarki í tilteknum hópum.

Ítarlegar rannsóknir á virtum rannsóknastofnunum hér á landi og erlendis benda eindregið til þess að bakterían Streptococcus Zooepidemicus sé helsti og mjög líklega eini orsakavaldur sjúkdómsins. Bakterían hefur ræktast úr öllum hrossum með hósta og litað nefrennsli. Ekki hefur verið hægt að tengja sjúkdóminn við neina þekkta veirusýkingu í hrossum og ekkert bendir til að veirusjúkdómur né ónæmisbæling liggi að baki sjúkdómsins. Fullyrðingar um annað eiga ekki við rök að styðjast.

Þessi baktería er þekktur sjúkdómsvaldur í hrossum um allan heim þó ekki verði séð að hún hafi áður valdið viðlíka faraldri. Sem kunnugt er er meðgöngutími sjúkdómsins langur og það getur tekið 3-4 vikur að koma í ljós hvort smitaðan hest er að finna í afmörkuðum hrossahópi. Þær reglur sem nú eru kynntar eru því nauðsynlegar til að draga úr hættunni á að smituð hross fari úr landi. Þess ber að geta að þrátt fyrir að smituð hross hafi verið í hópi þeirra sem fóru úr landi 10. maí sl varð ekki vart við að þau smituðu út frá sér í nýjum heimkynnum.

Sýking af völdum Streptococcus Zooepidemicus er ekki meðal tilkynningaskildra sjúkdóma til Alþjóða dýraheilbrigðisstofnunarinnar og ekki hefur verið lagt bann við flutningi hrossa frá Íslandi.  Lönd í Evrópusambandinu gera þær kröfur eins og ævinlega  að hross sem þau taka við séu án sjúkdómseinkenna og að það sama eigi við um öll hross sem þau hafi umgengist undangengna 30 daga (60 daga við flutning til USA). Þannig er hættunni á útbreiðslu sjúkdóma haldið í lágmarki.

Við þær sjúkdómsaðstæður sem nú ríkja  þarf að halda fyrirhuguð útflutningshross í einangruðum hópum heima á bæjunum, í nokkurs konar heimaeinangrun, í a.m.k. 30 daga fyrir útflutning (60 daga við flutning til USA). Einangrunin og eftirlit með hrossunum verður á ábyrgð eigenda eða umráðamanns og til frekara öryggis skal einangrunaraðstaðan og heilbrigði hrossanna metið af dýralækni áður en þau eru send af stað til útflytanda. Yfirlýsing eiganda/umráðamanns og viðkomandi dýralæknis um að hrossin séu einkennalaus og að reglum um einangrun hafi verið fylgt skulu fylgja með hverju hrossi til útflytjanda og áfram til héraðsdýralæknis á sérstökum eyðublöðum. Eyðublöðin er að finna á heimasíðu Matvælastofnunar og hjá útflytjendum og á þeim er nánari lýsing á reglum um einangrunina. Héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarumdæmis veitir allar nánari upplýsingar.