Útskriftarhóf Æskulýðnefndar Sleipnis 2011

Í gærkvöld var haldið útskriftarhóf í Hliðskjálf þar sem nemendum af öllum reiðnámskeiðum Sleipnis í vetur voru afhent viðurkenningarskjöl. Í gærkvöld var haldið útskriftarhóf í Hliðskjálf þar sem nemendum af öllum reiðnámskeiðum Sleipnis í vetur voru afhent viðurkenningarskjöl. Æskulýðsnefnd bauð upp á kaffi, gos og kakó en foreldrar mættu með viðurgjörning á hlaðborð sem útskriftargestir gæddu sér á í lokin.

16 börn sóttu reiðnámskeið fyrir minna vana annars vegar og meira vana hins vegar. Vornámskeið (leikur og lærdómur) sóttu 24 börn. Keppnisnámskeið sóttu 14 börn og unglingar auk þess sem við útskrifuðum 22 unglinga í knapamerkjaprófum, 11 með grænt merki og 11 með gult en skemmst er frá að segja að allir náðu sínu prófi.

Nefndin veitti viðurkenningar og gjafabréf þeim sem sköruðu fram úr í knapamerkjaprófum í vetur og vor en þau voru:
Elsa Margrét Jónasdóttir sem hlaut í aðaleinkunn 9,45 í grænu merki
Sigríður Óladóttir sem hlaut 9,5 í aðaleinkunn í gulu merki og
Ingi Björn Leifsson sem hlaut 9,4 í aðaleinkunn í gulu merki.

Eins og nærri má geta var Hliðskjálf full af fólki, setið á hverjum stól og nokkrir sátu á gólfinu. Mikið fjör var hjá krökkunum sem voru að vonum ánægð með árangur vetrarins sem hefur verið viðburðarríkur og skemmtilegur. Um 30 börn úr Sleipni tóku þátt í Hestafjöri 2011 sem heppnaðist mjög vel og stóðu sig þar allir vel, bæði pollahópur og munsturreiðarhóparnir okkar sem voru tveir.

Reiðkennarar í vetur voru Hugrún Jóhannsdóttir sem vann seinni hlutann með hópinn í gulu merki, Vornámskeiðið og keppnisnámskeiðið auk þess sem hún þjálfaði og undirbjó Hestafjörshópana. Þorvaldur Árni Þorvaldsson sem kenndi hópum á reiðnámskeiðum fyrir minna vana, meira vana, grænt knapamerki og fyrri hluta þjálfunar á hópnum í gulu knapamerki auk undirbúnings fyrir þá sem þreyttu stöðupróf. Oddný Lára Guðnadóttir sá um bóklega kennslu í knapamerkjum í vetur. Mikil almenn ánægja er með störf þeirra allra og vonumst við til að fá þau í lið með okkur á næsta ári.

Æskulýðsnefndin þakkar öllum veittan stuðning og aðstoð.