Verður þú ein(n) þeirra ALLRA STERKUSTU?

Dalli.is
Dalli.is
Úrtaka fyrir Ístöltið – þeir allra sterkustu verður haldin laugardaginn 24. mars og hefst hún kl. 20:00 í Skautahöllinni í Laugardal. Úrtaka fyrir Ístöltið – þeir allra sterkustu verður haldin laugardaginn 24. mars og hefst hún kl. 20:00 í Skautahöllinni í Laugardal.

Síðasti skráningardagur er í dag, fimmtudaginn 22. mars og er tekið við skráningum á netfangið hilda@landsmot.is fram til kl. 23:59 í kvöld! Það sem þarf að koma fram er nafn, kennitala og gsm-númer knapa, IS-númer, nafn og uppruni hests og að lokum kortanúmer fyrir skráningargjaldinu sem er kr. 5000.

Ef þú lumar á snaggarlegum töltara, skráðu þig til leiks og freistaðu þess að keppa við ÞÁ ALLRA STERKUSTU þann 31. mars n.k.

Landsliðsnefnd LH