Æskulýðsmót Léttis og Líflands

16.04.2014
Æskulýðsmót Léttis og Líflands verður laugardaginn 19. apríl næst komandi. Mótið er opið og hefst stundvíslega kl 9:00. Skráning er hafin í Líflandi og er skráningargjald 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu og 500 kr. fyrir aðra skráningu. Ekki verður hægt að greiða skráningargjald með korti.

Æskulýðsmót Léttis og Líflands verður laugardaginn 19 apríl næst komandi. Mótið er opið og hefst stundvíslega kl 9:00. Skráning er hafin í Líflandi og er skráningargjald 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu og 500 kr. fyrir aðra skráningu. Ekki verður hægt að greiða skráningargjald með korti.

Einnig er hægt að senda skráningu á lettir@lettir.is. Skráningargjald greiðist í upphafi móts.

Keppt verður í:

  • Fjórgangi V2 í Barna, unglinga og ungmennaflokki. 
  • Tölt T8 í barnaflokki. 
  • Tölti T2 í unglinga og ungmennaflokki.
  • Fimmgangi opnum flokki
  • Pollaflokki, frjáls aðferð.

Skráning þarf að berast fyrir fimmtudaginn 17. apríl. Hlökkum til að sjá ykkur.

Æskulýðsnefnd Léttis og Lífland