Breytingar á stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

16.07.2013
Við fráfall Ólafs E. Rafnssonar forseta ÍSÍ 10.júní sl. tók Lárus L. Blöndal varaforseti ÍSÍ við embætti forseta ÍSÍ, eins og lög ÍSÍ kveða á um.

Við fráfall Ólafs E. Rafnssonar forseta ÍSÍ 10.júní sl. tók Lárus L. Blöndal varaforseti ÍSÍ við embætti forseta ÍSÍ, eins og lög ÍSÍ kveða á um.

Á fundi framkvæmdarstjórnar ÍSÍ 11.júlí var síðan endurskipað í embætti stjórnar sambandsins. Helga Steinunn Guðmundsdóttir var skipuð í embætti varaforseta og Sigríður Jónsdóttir í embætti ritara. Gunnar Bragason verður eftir sem áður gjaldkeri ÍSÍ.