Er hundur í hestunum?

19.03.2014
Mynd: Gígja Einars
Opnunaratriði Hestadaga í Reykjavík 3.apríl 2014 - Hér leiða saman hesta sína Hilmir Snær og hljómsveitirnar Brother Grass og Hundur í óskilum. Boðið verður upp á nýstárlegt, tónrænt uppistand í Norðurljósasal Hörpu. Íslenski hesturinn verður skoðaður frá öllum hliðum og rifjuð upp rysjótt sambúð hans við ótamin náttúruöfl og brokkgenga þjóð.

Opnunaratriði Hestadaga í Reykjavík 3.apríl 2014

Hér leiða saman hesta sína Hilmir Snær og hljómsveitirnar Brother Grass og Hundur í óskilum. Boðið verður upp á nýstárlegt, tónrænt uppistand í Norðurljósasal Hörpu. Íslenski hesturinn verður skoðaður frá öllum hliðum og rifjuð upp rysjótt sambúð hans við ótamin náttúruöfl og brokkgenga þjóð.  Hilmir Snær segir sögur af hestum og brestur í söng og hljómsveitin Brother Grass leikur þekkt og óþekkt íslensk hestalög með nokkrum öðrum hætti en fólk á að venjast. Þá mun hljómsveitin Hundur í óskilum leika lausum hala um sviðið og aðstoða bæði Hilmi Snæ og Brother Grass við flutninginn.  

Hvetjum hestamenn og aðra til að koma og upplifa íslenska hestinn á þessum einstaka viðburði í gegnum sögur, ljóð og söng.

Höfundur: Hjörleifur Hjartarson
Sagnamaður: Hilmir Snær Guðnason
Tónlistarstjóri: Örn Eldjárn
Auk þeirra koma fram Hljómsveitirnar Brother Grass og Hundur í óskilum