Firmakeppni Spretts á laugardaginn!

24.04.2013
Firmakeppni hestamannafélagsins Spretts í Kópavogi og Garðabæ fer fram laugardaginn 27. apríl nk. Keppnin fer fram á nýja hringvellinum í skeifunni.

Firmakeppni hestamannafélagsins Spretts í Kópavogi og Garðabæ fer fram laugardaginn 27. apríl nk. Keppnin fer fram á nýja hringvellinum í skeifunni. Boðið verður upp á keppni í eftirfarandi flokkum (í þessari röð):

  • Pollar (teymdir og ríðandi saman, fullorðnir verða að fylgja)
  • Börn
  • Unglingar
  • Ungmenni
  • Konur II
  • Karlar II
  • Heldri menn og konur +50
  • Konur I
  • Karlar I
  • Opinn flokkur

Sýnt verður hægt tölt og svo yfirferð (tölt eða brokk). 

Skráning fer fram á milli kl. 11 og 12 í félagsheimilinu á Kjóavöllum. Allir þeir sem liggja með keppnisnúmer heima í hesthúsi verða að mæta með þau til skráningar! Keppnin er ætluð skuldlausum félögum í Spretti eingöngu. Engin
skráningargjöld. 

Keppni hefst kl. 13:30 og keppa allir flokkar á nýja hringvellinum.

Hittumst hress!