Flestir vilja í ferðalag

27.05.2009
Hestaferðalög er skemmtilegasta hestaíþróttin samkvæmt skoðanakönnun www.lhhestar.is. 37% þátttakenda í könnuninni velja þann kost. Gæðingakeppnin fær næst hæsta skor, 25%. Hestaferðalög er skemmtilegasta hestaíþróttin samkvæmt skoðanakönnun www.lhhestar.is. 37% þátttakenda í könnuninni velja þann kost. Gæðingakeppnin fær næst hæsta skor, 25%.

Íþróttakeppnin er í þriðja sæti með 15%, kynbótasýningar í því fjórða með 15% og stuttir útreiðartúrar í því fimmta og síðasta með 5%. Án efa er þó síðastnefndi kosturinn sá mest stundaði. Til samans eru gæðinga- og íþróttakeppni með 43% þátttakenda á bak við sig. Undirstrikar það hinn mikla áhuga hestafólks á þátttöku í þessum keppnisgreinum, sem svo augljóslega kemur fram í vaxandi umfangi hestamótanna. Alla vega hvað keppendur varðar. 279 tóku þátt í könnuninni.

Hvað er skemmtilegasta hestaíþróttin?
Gæðingakeppni : 25%
 
Íþróttakeppni : 18%
 
Kynbótasýningar : 15%
 
Stuttir útreiðartúrar : 5%
 
Hestaferðalög : 37%