Hestaþing Snæfellings 2011

03.06.2011
Hestaþing Snæfellings 2011 og úrtaka fyrir Landsmót verður haldið á Kaldármelum mánudaginn 13. júní 2011, (annar í hvítasunnu). Hestaþing Snæfellings 2011 og úrtaka fyrir Landsmót verður haldið á Kaldármelum mánudaginn 13. júní 2011, (annar í hvítasunnu).

Dagskrá hefst kl. 10:00, mótið verður flokkaskipt

Dagskrá: (háð nægri þátttöku í öllum flokkum)

• Forkeppni
Byrjendaflokkur fullorðinna, keppt verður í B-flokki gæðinga, keppni stjórnað af þul. 
• Pollaflokkur, bæði keppt í flokki polla þar sem er teymt og án teyminga.  Allir fá þátttökuverðlaun.
• B-flokkur gæðinga: Opinn flokkur og minna keppnisvanir,
• barna-unglinga- og ungmennaflokkar.
• A-flokkur gæðinga: Opinn flokkur og minna keppnisvanir.
• Tölt: 17 árs og yngri, opinn flokkur fullorðinna og minna keppnisvanir fullorðnir.  Byrjendaflokkur fullorðinna.
• Úrslit
• B-flokkur: Barna-, unglinga- og ungmennaflokkar.  Minna keppnisvanir, byrjendur fullorðinna og opinn flokkur fullorðinna.
• A-flokkur: Opinn flokkur og minna keppnisvanir.
• Tölt: 17 ára og yngri, opinn flokkur og minna keppnisvanir, byrjendaflokkur fullorðinna.
• 100m skeið: skráning á staðnum, skráningargjald kr. 3000 á hest, sigurvegari fær 1/3 skráningargjalda í verðlaun.

Skráningar fara fram með því að senda tölvupóst á netfangið herborgs@hive.is

Við skráningu þarf kennitölu knapa, skráningarnúmer hests og upp á hvora hönd knapi vill hefja keppni. 
Skráningargjald er 2.000 kr. fyrir hverja skráningu í öllum flokkum nema í skeiði, barna- og unglingaflokki, en þar er skráningargjaldið kr. 500 fyrir hverja skráningu.
Skráningargjöld þarf að greiða fyrir lok skráningartíma inn á reikning 0191 26 2876, kt  440992-2189  og senda kvittun á herborgs@hive.is

Tekið er við skráningum til þriðjudagsins 7. júní kl 16.

Stjórn Snæfellings