Húnvetnska liðakeppnin

15.01.2009
Stefnt er að því að halda fyrsta mótið í Hvammstangahöllinni 13. febrúar nk. Mótið er LIÐAKEPPNI og verður þetta heil mótaröð þar sem safnað verður stigum á hverju móti fyrir sig og í lok mótaraðarinnar stendur uppi eitt sigurlið. Á fyrsta mótinu verður keppt í tölti, í 1. flokki, 2. flokki og flokki 16 ára og yngri.Stefnt er að því að halda fyrsta mótið í Hvammstangahöllinni 13. febrúar nk. Mótið er LIÐAKEPPNI og verður þetta heil mótaröð þar sem safnað verður stigum á hverju móti fyrir sig og í lok mótaraðarinnar stendur uppi eitt sigurlið. Á fyrsta mótinu verður keppt í tölti, í 1. flokki, 2. flokki og flokki 16 ára og yngri.Stefnt er að því að halda fyrsta mótið í Hvammstangahöllinni 13. febrúar nk. Mótið er LIÐAKEPPNI og verður þetta heil mótaröð þar sem safnað verður stigum á hverju móti fyrir sig og í lok mótaraðarinnar stendur uppi eitt sigurlið. Á fyrsta mótinu verður keppt í tölti, í 1. flokki, 2. flokki og flokki 16 ára og yngri.

Liðin skiptast þannig:

Lið 1: Hvammstangi, Miðfjörður og Hrútafjörður
Lið 2: Vatnsnes, Vesturhóp og Línakradalur (Gamli Kirkjuhvammshr. og Þverárhreppur)
Lið 3: Víðidalur og Fitjárdalur
Lið 4: Austur-Húnavatnssýsla (bjóðum ykkur sérstaklega velkomna)

Reglur fyrir Húnvetnsku mótaröðina/liðakeppni:

1. flokkur, ef keppendur eru 16 eða fleiri eru B-úrslit haldin. 4 efstu eru öruggir í A-úrslit, sá fimmti þarf að vinna sig upp í úrslitin.
Stig í A-úrslitum eru gefin þannig:

1. sæti - 12 stig
2. sæti - 10 stig
3. sæti - 8 stig
4. sæti - 7 stig
5. sæti - 6 stig

Sé keppt í B-úrslitum fá þeir aðilar sem komast í þau úrslit 1 stig nema það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum.

2. flokkur, sömu reglur í sambandi við A- og B-úrslit. Stigagjöf er þó öðruvísi.
Stig í A-úrslitum eru gefin þannig:

1. sæti - 6 stig
2. sæti - 5 stig
3. sæti - 4 stig
4. sæti - 3 stig
5. sæti - 2 stig

Sé keppt í B-úrslitum fá þeir aðilar sem komast í þau úrslit 1 stig nema það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum.

Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, þ.e. bannað að skipta um lið á miðju tímabili. Barna- og unglingaflokkur (16 ára og yngri) eru ekki með í stigakeppninni. Engin takmörk eru á fjölda liðsmanna í hverju liði. Leyfilegt er að fá liðsmann utan héraðs til að keppa fyrir sitt lið, en hann verður þá að keppa með sama liðinu allt tímabilið.

Hver keppandi má keppa á fleiri en einum hesti í hverri grein, en ef keppandi kemst með tvo hesta í úrslit verður hann að velja á milli þeirra og aðeins keppa á öðrum í úrslitum. Ekki hægt að fá aukaknapa til að ríða úrslit fyrir sig.

Skráning er á mail: kolbruni@simnet.is fyrir 10 febrúar nk.

 http://www.123.is/thytur/

Á myndinni er Sigríður Lárusdótir á Erlu frá Gauksmýri.