Ís-landsmót á Svínavatni 6. mars

22.02.2010
Undirbúningur vegna mótsins gengur ágætlega og mikil og góð stemming í gangi. Það eina sem menn hafa áhyggjur af  (aðallega sunnan heiða)  er hvort ísinn sé í lagi. Undirbúningur vegna mótsins gengur ágætlega og mikil og góð stemming í gangi. Það eina sem menn hafa áhyggjur af  (aðallega sunnan heiða)  er hvort ísinn sé í lagi. Til þess að taka af allan vafa um það mál  þá er ísinn að  lágmarki 50 cm. þykkur og spegilsléttur. Meðfylgjandi mynd sem tekin er 20. febrúar segir það sem segja þarf.. Nánari upplýsingar um t.d. gistimöguleika, keppnisreglur, verðlaun o.fl. má nálgast á nýrri heimasíðu, http://www.is-landsmot.is/ ,  sem verður uppfærð eftir því sem þörf er á.