Íslandsmót barna og unglinga

27.06.2024

Íslandsmót barna- og unglinga 2024 verður haldið á félagssvæði Harðar í Mosfellsbæ dagana 19.-21. júlí.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Barnaflokkur: Gæðingalist 1. stig, Tölt T3, Tölt T4 og Fjórgangi V2.

Unglingaflokkur: Gæðingalist 2. stig, Tölt T1, Tölt T4, Fjórgangur V1, Fimmangur F2, Gæðingaskeiði PP1 og 100 m. flugskeið P2.

Jafnframt verður nú boðið uppá gæðingakeppni og gæðingatölt í báðum aldursflokkum.

Opið verður fyrir skráningu á mótið inná www.sportfengur.com, fram til miðnættis 11. júlí.