Knapamerkjakerfið er hvetjandi

10.02.2009
„Knapamerkjakerfið er hvetjandi,“ segir Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir reiðkennari á Blönduósi. Nú eru fimmtíu börn og unglingar á reiðnámskeiðum á félagssvæði Neista. Sami fjöldi er á námskeiðum í knapamerkjakerfinu á svæði Þyts á Hvammstanga. „Knapamerkjakerfið er hvetjandi,“ segir Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir reiðkennari á Blönduósi. Nú eru fimmtíu börn og unglingar á reiðnámskeiðum á félagssvæði Neista. Sami fjöldi er á námskeiðum í knapamerkjakerfinu á svæði Þyts á Hvammstanga. „Það er engin spurning að þetta fyrirkomulag hefur hvetjandi áhrif, bæði á börn og fullorðna,“ segir Sigurbjörg. „Fólk upplifir að það sé á einhverri leið. Áður kom það alltof oft fyrir að fólk hjakkaði í sama farinu. Það var kannski munur á milli reiðkennara en það var engin mörkuð stefna í kennslunni. Nú tekur fólk próf og útskrifast stig af stigi.“

Sigurbjörg er með reiðkennararéttindi frá Hólaskóla, hefur lokið þriggja ára námi þar. Hún er einnig með tamningastöð á Blönduósi og er með verknámsnema frá Hólaskóla sér til aðstoðar. Sigurbjörg er frá Gilsárteigi á Héraði. „Ég hef búið hér á Blönduósi í nokkur misseri, en ég er víst ennþá í Freyfaxa,“ segir Sigurbjörg að lokum og brosir kankvíslega.