Knapar og hestar í kalt bað

03.02.2009
Knapar og hestar í Meistaradeild VÍS fengu heltur betur kalt bað við setningu deildarinnar, sem fram fór á Tjörninni í Reykjavík. Tíu til fimmtán hestar lentu í vök þegar ísinn brotnaði undan þeim. Knapar og hestar í Meistaradeild VÍS fengu heltur betur kalt bað við setningu deildarinnar, sem fram fór á Tjörninni í Reykjavík. Tíu til fimmtán hestar lentu í vök þegar ísinn brotnaði undan þeim. Sýning keppenda í Meistaradeildinni var lokaatriði á blaðamannafundi sem var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fljótlega þegar hestar og áhorfendur voru komnir út á ísinn varð ljóst að hann var ekki vel traustur. Hann dúaði og brast við hátt. Í hita leiksins uggðu knaparnir ekki að sér og fylktu liði í breiðfylkingu með þeim afleiðingu að ísinn gaf sig.

Að vonum varð uppi fótur og fit. Vatnið náði hestunum upp fyrir miðjar síður. Þeir sukku í leirdrulluna í botninum og áttu því erfitt með að spyrna sér upp á ísskörina, sem brotnaði undan þeim jafnóðum. Nokkrir vaskir sveinar með Fjölni Þorgeirsson í fararbroddi létu sig vaða niður í kalt vatnið, settu löng bönd aftur fyrir hestana þannig tókst að tosa þá upp á ísinn. Engin alvarleg slys urðu á hestum og mönnum en nokkrir hestanna voru kaldir eftir volkið.