Leiðin að gullinu verður í streymi

25.11.2024

Nú styttist í menntahelgi Landsliðsins, U21 og Hæfileikamótunar.  Þar sem okkar glæsilegustu knapar gefa innsýn inn í það mikla afrekasstarf sem unnið er innan LH. Á laugardeginum verða sjö A landsliðknapar með sýnikennslur og á sunnudeginum mun hluti þátttakenda úr Hæfileikamótun koma fram með hestana sína og gefa áhorfendum tækifæri til að sjá hvernig vinnuhelgar Hæfileikamótunar fara fram. Í Hæfileikamótun er lögð er áhersla á að höfða til metnaðarfullra afreksknapa á aldrinum 14- 17 ára sem m.a. stefna á að keppa fyrir Íslands hönd í framtíðinni. 

U 21 Landsliðið mun svo mæta á staðinn og flestir á þeim hesti/hestum stefnt er með á HM í Sviss 2025. Þau munu bjóða uppá blöndu af sýnikennslu og skrautreið en einnig gefst áhorfendum tækifæri til þessa að sjá hvar pörin eru stödd í undirbúningi sínum fyrir heimsmeistaramótið. 

Það er því ljóst að allir hestamenn ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í reiðhöllinni í Víðidal um helgina. Þá verður einnig glæsileg veitingasala á svæðinu, þar sem verður m.a boðið uppá dýrindis jólamat. 

Einnig verður hægt að fylgjast með viðburðinum í gegnum streymi í samstarfi við Eiðfaxa TV. Hér er hægt að kaupa aðgang að streyminu.  Verð fyrir streymi er 6900kr og tryggir það aðgang að báðum viðburðunum. Hægt er að horfa á efnið fram til 13. desember. 

 

Dagskráin verður sem hér segir: 

 

Laugardagur

Kl 10:00

Ragnhildur Haraldsdóttir: Tenging taumhringsvinnu við form og gangtegundir.
Glódís Sigurðardóttir: Auka skrefastærð með formi og stillingu.
Hinrik Bragason: Undirbúningur fyrir gæðingaskeið - samspil í gleði og vilja í verki.
Guðmunda Ellen Sigurðardóttir: Tenging sætisnotkunar og taums, samhæfing knapa og hests
 
Hádegishlé
 
Helga Una Björnsdóttir: Slaktaumatölt – undirbúningur, aðferðir, hestgerðir
Jóhanna Margrét Snorradóttir: Hraðabreytingar, samspil safnandi hvetjandi og hamlandi æfingar.
Teitur Árnason: Viðhalda gleði með fjölhæfni og léttleika.
 
Dagskrá lýkur um kl 15:15
 
Sunnudagur
 
Kl 13:00
Hæfileikamótun LH
 
Hlé
 
U21 Landsliðið
 
Dagskrá lýkur um kl 16:00
 
Miðaverði er ekki nema 5900kr - svona ca eins og hálfur einkatími hjá reiðkennara. Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt að mæta verður boðið upp á streymi á viðburðin gegn sama verði og verður sá linkur auglýstur sérstaklega.  Ekki missa af þessu!