Lögleg innanhúsmót

02.02.2016

Tilkynning frá Stjórn HÍDÍ um innanhúsmót

Hægt er að halda lögleg innanhúsmót í íþróttakeppni hér á landi. Til þess þarf einfaldlega að fara eftir öllum venjulegum reglum varðandi íþróttakeppni. Sjá reglu 8.3.2.1 Innanhússmót


Um innanhússmót gilda eftirfarandi reglur: 

Almennt gilda sömu reglur og utanhúss með eftirfarandi undantekningum: 

  1. Sérstaklega skal minnt á skil á mótsskýrslu til að árangur skráist í Mótafeng og þar með inn í Worldfeng.
  2. Þegar riðið er inn á völl á innanhússmótum er leyfilegt að leyfa lengri leið áður en keppni hefst, eftir því sem aðstæður leyfa.
  3. Einkunnir úr innanhússmótum gilda ekki sem árangur til keppni utanhúss. Þær gilda því ekki sem lágmarkseinkunn til þátttöku í tölti á Landsmóti, ekki til þátttöku á Íslandsmóti né sem lágmarkseinkunn til þátttöku í meistaraflokki.

Að öðru leyti gilda allar almennar keppnisreglur sbr lagagrein um innanhússmót.

Stjórn HÍDÍ