Málþing um úrbætur í reiðvegamálum 14.október

20.09.2017

Landssamband hestamannafélaga stendur fyrir málþingi um úrbætur í reiðvegamálum þann 14. október næstkomandi í Menntaskóla Borgafjarðar í Borgarnesi.

Málþingið hefst kl.10:00 á skráningu og morgunverði og lýkur um 15:30-16:00 með samantekt og útbúin áskorun um úrbætur í reiðvegamálum. Léttur hádegismatur verður í boði LH. Nánari dagskrá verður auglýst síðar

Fulltrúar reiðveganefnda hestamannafélaga eru sérstaklega hvattir til að mæta, en málþingið er öllum opið sem hafa áhuga á málaflokknum.

Enginn þátttökukostnaður en tilkynna þarf þátttöku á lh@lhhestar.is  fyrir 9.október 2017

Vonumst til að sjá sem flesta