Meistaradeild VÍS - fjórgangur í kvöld

19.02.2009
Frá Meistaradeild VÍS: Mikil spenna er fyrir öðru móti Meistaradeildar VÍS sem fer fram í kvöld en þar verður keppt í fjórgangi. Margar þekktar stjörnur munu þar berjast og nýjar koma fram. Frá Meistaradeild VÍS: Mikil spenna er fyrir öðru móti Meistaradeildar VÍS sem fer fram í kvöld en þar verður keppt í fjórgangi. Margar þekktar stjörnur munu þar berjast og nýjar koma fram. Dagskrá:

Forkeppni     19:30
B-úrslit      21:15
Happdrætti    22:00
A-úrslit      22:10

Ársmiðasalan er enn í fullum gangi í verslunum Líflands, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi. Einnig verða ársmiðar seldir við innganginn í kvöld. Aðgöngumiðinn inn á hvert mót kostar krónur 1.500,- en ársmiðinn kostar krónur 5.000,-

Í happdrættinu verður folatollur undir Óm frá Kvistum dreginn út í kvöld. Happdrættismiðinn kostar krónur 1.000,- og verða eingöngu 250 miðar seldir.