Meistaradeild VÍS í Sjónvarpinu

11.02.2009
Á morgun fimmtudag verður fyrsti þátturinn um Meistaradeild VÍS sýndur á RÚV. Þátturinn er á dagskrá klukkan 18:25. Í fyrsta þættinum er sýnt frá afar spennandi keppni í smala eða hraðafimi, þar sem knapar sýndu mikil tilþrif. Á morgun fimmtudag verður fyrsti þátturinn um Meistaradeild VÍS sýndur á RÚV. Þátturinn er á dagskrá klukkan 18:25. Í fyrsta þættinum er sýnt frá afar spennandi keppni í smala eða hraðafimi, þar sem knapar sýndu mikil tilþrif. Tvær nýjar þrautir juku á fjölbreytnina og erfiðleikastigið og áttu sumir í nokkrum erfiðleikum með þær. Afreksmaðurinn Sigurbjörn Bárðarson er heimsóttur – hann hefur sigrað Meistaradeildina einu sinni en mun oftar verið afar nærri því og er ávallt í fremstu röð.  Umsjónarmenn þáttarins eru Brynja Þorgeirsdóttir og Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir.