Opið íþróttamót Glaðs 20. apríl

18.04.2013
Hestaíþróttamót Glaðs fer fram á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 20.apríl og hefst stundvíslega kl. 10:00.

Hestaíþróttamót Glaðs fer fram á reiðvellinum í Búðardal laugardaginn 20.apríl og hefst stundvíslega kl. 10:00.

 

Dagskrá:

Forkeppni:

Fjórgangur V2: opinn flokkur, barnaflokkur, unglingaflokkur og
ungmennaflokkur

Fimmgangur F2: opinn flokkur

Pollaflokkur (9 ára og yngri): tölt á frjálsum hraða, 1 hringur upp á hvora
hönd

Tölt T3: barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur og opinn flokkur

Úrslit:

Fjórgangur: opinn flokkur, barnaflokkur, unglingaflokkur og ungmennaflokkur

Fimmgangur: opinn flokkur

Tölt: barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur og opinn flokkur

100 m skeið

 

Skráningar:

Farið inn á þessa slóð: www.sportfengur.com og smellið á SKRÁNINGAKERFI
vinstra megin á síðunni (fyrir neðan Login hnappinn, athugið að ekki á að
logga sig inn á SportFeng). Tengill á SportFeng er líka á vef Glaðs, undir
Ýmsir tenglar hægra megin. Á forsíðu skráningakerfisins er smellt á Skráning
í valmynd og síðan á flipann Mót. Áframhaldið rekur sig sjálft, munið bara
að skrá einnig upp á hvora hönd þið þið ætlið að ríða og að fara í Vörukörfu
að skráningu lokinni og að klára þar öll skref í ferlinu.

Hér er myndband <http://youtu.be/d_wkk2iyBnE> sem sýnir notkun
skráningakerfisins. Ef einhver lendir samt í vandræðum er sjálfsagt að hafa
samband við Svölu í 861 4466 eða budardalur@simnet.is eða við Þórð í 893
1125 eða thoing@centrum.is.

Ganga þarf frá greiðslu skráningagjalda með innlögn á bankareikning en þær
upplýsingar koma fram í skráningarferlin. Athugið að skráningin verður ekki
virk fyrr en gjaldkeri hefur merkt við að greiðsla hafi borist! Gjaldið er
kr. 1.500 á skráningu. Síðasti dagur skráninga er miðvikudagurinn 17. apríl
og það sama gildir um greiðslu skráningagjalda.

 

Athugið breyttar reglur:

Athygli keppenda er vakin á því að nú má ekki lengur skipta um hest (koma
með annan hest en þann sem skráður var) þó svo að um íþróttakeppni sé að
ræða. Einnig á því að í keppnisgreininni Tölt T3 eru úrslit riðin eins og
forkeppni, þ.e. hvert atriði sýnt aðeins upp á aðra höndina en ekki upp á
báðar hendur eins og í T1 sem við höfum hingað til keppt í. Loks minnum við
á að nú þarf barn að verða að lágmarki 10 ára á árinu til að mega keppa í
barnaflokki.

Mótanefnd Glaðs