Ræktunarbú á LM 2012

14.05.2012
Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á landsmótum hestamanna og á LM2012 í Reykjavík verður engin breyting þar á.

Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á landsmótum hestamanna og á LM2012 í Reykjavík verður engin breyting þar á. Stefnt er á að tilhögun sýninga verði með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði bundin við 10 ræktunarbú. Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins föstudagskvöldið 29. júní milli kl. 21:00 og 22:00 og áhorfendum verða boðið að velja bestu ræktunarbússýninguna með símakosningu.

Það ræktunarbú sem flest atkvæði hlýtur ávinnur sér þann heiður að koma fram á laugardagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku. Sýningartími á hvert bú er 5 mínútur. Útfærsla sýningar er alfarið á ábyrgð forráðamanna. Fótaskoðun verður viðhöfð og  gilda reglur gæðingakeppni þar um, auk þeirra viðmiðana um heilbrigði sem mótstjórn LM setur. Að lágmarki skulu 5 hross sýnd og þurfa þau að vera frá sama lögbýli, eða fædd meðlimum sömu fjölskyldu.

Þátttakendur velja tónlist sjálfir og hafa samráð við þul hvernig búið skuli kynnt.  Ein síða í mótaskrá fylgir til kynningar á búinu og þeim hestum sem koma fram í sýningunni en forsvarsmenn búanna verða að skila inn sinni síðu fyrir 11. júní.  Að auki geta sýnendur nýtt risaskjá við völl meðan á sýningu stendur.

Ræktunarbúi ársins 2011 er boðin þátttaka. Dregin verða svo 10 bú til þátttöku úr innsendum umsóknum. Skráningargjaldið er kr.100.000. 

Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á að koma fram með sinn hóp á Landsmóti 2012 eru beðnir að senda inn umsókn um slíkt og athugið að gefa upp nákvæmar upplýsingar um hvaða hross er stefnt með á sýninguna.

Umsóknarfrestur er til 1. júní og verður tilkynnt þann 4. júní hvaða ræktunarbú munu taka þátt. Umsóknir skulu sendar á netfangið landsmot@landsmot.is.

www.landsmot.is