Reykjavíkurmeistaramót Fáks 9.-14.maí

26.04.2017
Árni Björn og Stormur í Víðidalnum /eidfaxi.is

Mótið verður haldið dagana 9.-14.maí n.k. í Víðidalnum og verður WR mót. Skráning fer fram dagana 1.-4.maí (miðnætti). Mjög strangt verður tekið á þessum skráningarfresti, ekki verður hægt að skrá eftir að honum lýkur og ekki verður tekið við skráningum sem berast með tölvupósti, þ.e. allar skráningar skulu fara í gegnum Skráningarkerfi Sportfengs: http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Í boði verða eftirtaldar greinar og flokkar ef næg þátttaka næst:

  • F1 fimmgagur – meistaraflokkur
  • F2 fimmgagur – unglingar, ungmenni, 2.flokkur, 1.flokkur
  • V1 fjórgangur – meistaraflokkur
  • V2 fjórgangur – börn, unglingar, ungmenni, 2.flokkur, 1.flokkur
  • V5 fjórgangur – minna vanir
  • T1 tölt – meistaraflokkur
  • T3 tölt – börn, unglingar, ungmenni, 2.flokkur, 1.flokkur
  • T2 slaktaumatölt – meistaraflokkur
  • T4 slaktaumatölt – unglingar, ungmenni, 2.flokkur, 1.flokkur
  • T7 tölt – 17 ára og yngri
  • T7 tölt – opinn flokkur
  • PP1 gæðingaskeið – meistaraflokkur, 1.flokkur, 2.flokkur, ungmenni, unglingar
  • P1 250m skeið
  • P2 100m skeið
  • P3 150m skeið

Í ár verða settar fjöldatakmarkanir í ákveðna flokka og vegna þessa mun aðeins vera tekið við skráningum frá Fáksfélögum þann 1.maí. Keppendur úr öðrum félögum geta svo byrjað að skrá þann 2.maí. Fáksfélagar, munið að félagsgjöldin skulu vera greidd áður en skráning getur farið fram.

Dagskrá verður á þá leið að fjórgangur verður á þriðjudegi og miðvikudegi, fimmgangur á fimmtudegi og tölt á föstudegi. Athugið þó að þetta fer alveg eftir skráningu og eru þess vegna drög.

Skráningargjöldin verða þau sömu og 2016:

  • Meistaraflokkur – 6.500 kr. (nema gæðingaskeið 6.000 kr.)
  • 1.flokkur, 2.flokkur og ungmennaflokkur – 6.000 kr.
  • Unglingaflokkur og barnaflokkur – 4.500 kr.
  • Kappreiðaskeið – 4.500 kr.

Hér er nýjasta útgáfan af lögum og reglum LH og FEIF, keppendur eru ábyrgir fyrir því að kynna sér þær: http://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/2017/lh_logogreglur_28032017_prent.pdf

Mótanefnd Fáks