Síðasti skráningardagur fyrir Íslandsmót barna- og unglinga

11.07.2024

Íslandsmót barna- og unglinga 2024 verður haldið á félagssvæði Harðar í Mosfellsbæ dagana 17.-21. júlí.

Skráningu lýkur í kvöld kl 23:59 

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Barnaflokkur: Gæðingalist 1. stig, Tölt T3, Tölt T4 og Fjórgangi V2.

Unglingaflokkur: Gæðingalist 2. stig, Tölt T1, Tölt T4, Fjórgangur V1, Fimmangur F2, Gæðingaskeiði PP1 og 100 m. flugskeið P2.

Jafnframt verður nú boðið uppá gæðingakeppni og gæðingatölt í báðum aldursflokkum.

Þá verður boðið upp á pollaflokk bæði sjálfir og teymdir.

Opið verður fyrir skráningu á mótið inná www.sportfengur.com, fram til miðnættis 11. júlí.