Skráningu á Ískaldar lýkur á miðnætti í kvöld

15.02.2016
Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Héðinn Skúla

 

Spennan magnast fyrir Ísköldum töltdívum um helgina. Keppnin verður haldin í Samskipahöllinni í Spretti næstkomandi laugardag. Mótið er haldið til að efla konur til keppni í hestaíþróttum og styrkja um leið landslið Íslands í hestaíþróttum.

Skráning er á sportfeng og lýkur á miðnætti í kvöld.

Veglegir vinningar verða veittir og því til mikils að vinna!

  • Glæsilegasta parið hlýtur Reflect ábreiðu frá Hrímni, gjöf frá Líflandi og iittala vasa frá Ásbirni Ólafssyni.
  • Sigurvegari opins flokks hlýtur þátttökurétt á Allra sterkustu 26. mars næstkomandi.
  • Veglegir verðlaunagripir og aukavinningar frá Líflandi verða afhentir keppendum í A-úrslitum.
  • Landsmót hestamanna gefur 4 vikupassa sem dregnir verða úr hópi þeirra sem keppa í úrslitum.

Við hvetjum allar konur til að skrá sig og taka þátt í þessum frábæra degi með okkur.

Fjórir flokkar verða í boði:

  • Opinn flokkur (T1)
  • Meira vanar (T3)
  • Minna vanar (T7)
  • Ungmennaflokkur (T3)

 

Vonumst til að sjá sem flesta á laugardaginn!