Smali - Opið mót hjá Sörla

23.01.2012
Nú er komið að hinni árlegu smalakeppni æskulýðsnefndar Sörla og að þessu sinni höfum við fengið Coke í lið með okkur og þeir ætla að bjóða upp á drykki og verðlaun. Nú er komið að hinni árlegu smalakeppni æskulýðsnefndar Sörla og að þessu sinni höfum við fengið Coke í lið með okkur og þeir ætla að bjóða upp á drykki og verðlaun.

CocaCola mótaröðin

Mótið er opið öllum og kostar ekkert að keppa. Við höfum fengið Kristján Jónsson til að koma og hjálpa okkur við uppsetningu á brautinni.

Í ár verður keppt í eftirfarandi flokkum pollar, börn, unglingar og ungmenni/fullorðnir.
Laugardaginn  28. Janúar kl. 14.00 í reiðhöllinni á Sörlastöðum.

Skráning verður á netfanginu sorli1@visir.is
Taka fram flokk og félag
lokaskráning er á föstudaginn 27. janúar
Skemmtanagildið verður haft í fyrirrúmi.

Dagskrá:
Pollar yngri en 10 ára
Börn 10 – 13 ára
Unglingar 14 – 17 ára
Ungmenni / fullorðnir eldri en 18 ára

Tökum öll þátt og skemmtum okkur saman!

Æskulýðsnefnd Sörla