Sóttvarnarreglur í hestaíþróttum uppfærðar

11.05.2021

Nýjar sóttvarnarreglur tóku gildi þann 10. apríl og hafa sóttvarrnarreglur í hestaíþróttum verið uppfærðar til samræmis við nýjar reglur.

Æfingar og keppni eru heimilaðar. Fjöldatakmörkun á æfingum og í keppni er 75 manns.

Fjöldatakmörk á áhorfendasvæðum er 150 manns og heimilt er að hafa þrjú 150 manna hólf. Sæti þurfa að vera númeruð og tryggja þarf 1 meter á milli óskyldra aðila. Grímuskylda er á áhorfendasvæði. Skrá þarf alla áhorfendur, nafn, símanúmer og kennitölu. Börn fædd 2015 og síðar telja ekki með í fjöldatölu.

Veitingasala er heimil áður en mót hefst en ekki má selja veitingar í hléi. Koma verður eins og kostur er í veg fyrir hópamyndun fyrir viðburði, í hléi og eftir viðburði.

Engin blöndun á áhorfendum og keppendum er heimil.

Sjá gildandi sóttvarnarreglur í hestaíþróttum hér.