Stjórn LH fundar á Blönduósi

03.02.2009
Stjórn LH heldur vinnufund á Blönduósi um næstu helgi. Í tengslum við fundinn er hestamönnum í Húnaþingi, Skagafirði og Siglufirði boðið til almenns fundar næstkomandi föstudag, 6. febrúar, í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi. Stjórn LH heldur vinnufund á Blönduósi um næstu helgi. Í tengslum við fundinn er hestamönnum í Húnaþingi, Skagafirði og Siglufirði boðið til almenns fundar næstkomandi föstudag, 6. febrúar, í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi. Stjórnum Glæsis, Léttfeta, Stíganda, Neista, Þyts, Snarfara og Svaða hefur verið boðið formlega á fundinn. Það skal þó sérstaklega tekið fram að allir hestamenn eru velkomnir. Til umræðu verður verkefnastaða LH: Landsmót 2008 og Landsmót framtíðarinnar, æskulýðsmálin, keppnismál, tölvumál, WorldFengur og samstarfið við FEIF svo einhver atriði séu nefnd.

Tilgangur fundarins að hlýða á rödd hins almenna félagsmanns í viðkomandi félögum. Þess vegna eru allir sem láta sig málefni hestamanna varða hvattir til að mæta og láta í sér heyra. Og að sjálfssögðu verður heitt á könnunni.

Stjórn Landssambands hestamannafélaga