Stóðhestakynning á Ístölti

05.04.2013
Eftirtaldir stóðhestar mæta á ístöltið "Þeir allra sterkustu" til kynningar, hér eru á ferðinni frábærir hestar sem munu gleðja augu okkar á laugardagskvöld.
Eftirtaldir stóðhestar mæta á ístöltið "Þeir allra sterkustu" til
kynningar, hér eru á ferðinni frábærir hestar sem munu gleðja augu okkar á
laugardagskvöld.

1. Óskasteinn IS 2005157994 frá Íbishóli
2. Vörður IS2006184883 frá Strandarhjáleigu

3. Toppur IS2007187018 frá Auðsholtshjáleigu
4. Bikar IS2007155513 frá Syðri-Reykjum

5. Skýr IS2007184162 frá Skálakoti
6. Tinni IS2007187805 frá Blesastöðum

Ístöltið hefst kl 20.00 á laugardagskvöldið 6. apríl en húsið opnar kl.
19.30 þar munu etja kappi saman margir af bestu tölthestum og knöpum
landsins.
Allur ágóði rennur til landsliðs Íslands í hestaíþróttum miðaverð er 3.500
kr einnig verður sala á happdrættismiðum á kr. 1.000, aðgöngumiði + tveir
happdrættismiðar á 5.000 kr, aðalvinningur happdrættis er folatollur undir
Arion frá Eystra-Fróðholti auk annara vinninga.
Forsala er í fullum gangi í hestavöruverslunum auk þess sem miðar verða
seldir í Meistaradeildinni á föstudagskvöld, miðar einnig seldir við
inngang Skautahallarinnar frá kl. 18.30 á laugardag.

Mætum á ísinn eigum frábæra kvöldstund saman og styðjum myndarlega við
landsliðið okkar ÁFRAM ÍSLAND