Sumarfjarnám 1.og 2.stigs í þjálfaramenntun!

06.06.2011
Sumarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 27. júní nk. og tekur það átta vikur.  Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1. stiginu,1a, 1b og 1c. Sumarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 27. júní nk. og tekur það átta vikur.  Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1. stiginu,1a, 1b og 1c.

Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 24. júní. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer.  Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Þetta nám er metið sem ÍÞF 1024 í framhaldsskólum.

Sumarfjarnám 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 27. júní nk. og tekur það fimm vikur.  Um er að ræða samtals 40 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 2. stiginu, 2a og 2c.  Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Það er sjálfstætt framhald náms á 1. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ eða sambærilegs náms, s.s. náms í ÍÞF 1024. Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 24. júní. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer.  Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa 1. stigi alm. hluta eða sambærilegu námi. Þetta nám er metið sem ÍÞF 1024 í framhaldsskólum.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is