Það snýst um traust – Keppni í frumtamningu

16.02.2009
Keppni í frumtamningu verður haldin á TEKIÐ TIL KOSTANNA 23.-25. apríl. Þetta er í fyrsta sinn sem keppni af þessu tagi er haldin hér á landi. Það er Hólaskóli sem stendur fyrir keppninni. Höfundur hennar er Eyjólfur Ísólfsson. Eyjólfur segir að það hafi lengi verið draumur sinn að halda keppni af þessu tagi. Enda sé frumtamningin sá grunnur sem allt byggist á. Keppni í frumtamningu verður haldin á TEKIÐ TIL KOSTANNA 23.-25. apríl. Þetta er í fyrsta sinn sem keppni af þessu tagi er haldin hér á landi. Það er Hólaskóli sem stendur fyrir keppninni. Höfundur hennar er Eyjólfur Ísólfsson. Eyjólfur segir að það hafi lengi verið draumur sinn að halda keppni af þessu tagi. Enda sé frumtamningin sá grunnur sem allt byggist á. „Þetta er frumraun,“ segir Eyjólfur. „Keppnin hefur þegar fengið nafn, sem lýsir inntaki hennar: "Það snýst um traust". Það eru verknámsnemar skólans sem munu taka þátt í keppninni að þessu sinni. Framhaldið ræðst svo af því hversu vel þetta heppnast og hvernig fólki líst á. Ég er viss um að þetta verður spennandi og skemmtileg keppni, sem reynir á þolinmæði, nákvæmni og útsjónarsemi tamningamannsins. Hún byggist að hluta á þeim verkefnum sem nemendurnir eru að læra hér við skólann og í verknáminu. Hugsanlega verða lagðar fyrir þá nýjar þrautir, og síðan mega keppendur sýna frjáls atriði til að undirstrika það sem keppnin snýst um — traustið milli manns og hests!

Nánari útlistun á keppninni verður birt innan tíðar á www.holar.is