Tilnefningar til knapaverðlauna 2024

03.10.2024

Nú styttist í uppskeruhátíð hestafólks og að sjálfssögðu verða þar heiðraðir þeir knapar sem hafa náð hvað bestum árangri á árinu.

Af mörgu er að taka enda er frábæru keppnisári að ljúka og verður einkar spennandi að sjá hverjir munu hreppa hin glæsilegu verðlaun. Þess ber að geta að verðlaunagripurinn er sérhannaður af Inga í Sign og ber heitið Eldur:

,,Gripurinn Eldur stendur á bryggjuborði sem táknar það þegar lagt er af stað úr höfn hvort sem það er í ræktun, þjálfun eða keppni þar til úrslitin eru ráðin og sigurinn er í höfn. Hesturinn er úr kopar, táknar eldinn sem er einn af frumkröftum náttúrunnar og ekki síst okkar Íslendinga. Þar sem allt logar undir landi okkar, brennur einnig eldur innra með okkur. Sá eldur er það sem drífur okkur áfram og veitir okkur elju og dugnað sem þarf til að ná settu marki. Stálið í gripnum er tákn þess styrks sem þarf til að ná markmiði hvort sem styrkurinn er líkamlegur eða andlegur. Gyllta skeifan, sem táknar þá gæfu sem til þarf að allt gangi upp og gyllti liturinn endurspeglar að sigurinn er kominn í höfn. Það er okkur gleði og heiður að hanna þennan grip.

 

Tilnefndir til verðlauna eru:

Íþróttaknapi ársins 

  • Árni Björn Pálsson
  • Ásmundur Ernir Snorrason
  • Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
  • Hans Þór Hilmarsson
  • Jakob Svavar Sigurðsson

Skeiðknapi ársins 

  • Daníel Gunnarsson
  • Ingibergur Árnason
  • Konráð Valur Sveinsson
  • Sigursteinn Sumarliðason
  • Þórarinn Ragnarsson

Gæðingaknapi ársins 

  • Árni Björn Pálsson
  • Eyrún Ýr Pálsdóttir
  • Hanna Rún Ingibergsdóttir
  • Helgi Þór Guðjónsson
  • Sigurður Vignir Matthíasson

Efnilegasti knapi ársins

  • Guðný Dís Jónsdóttir
  • Guðmar Hólm Ísólfsson
  • Kristján Árni Birgisson
  • Matthías Sigurðsson
  • Védís Huld Sigurðardóttir
  • Þórgunnur Þórarinsdóttir

Keppnishestabú ársins 

  • Fet
  • Garðshorn á Þelamörk
  • Kagaðarhóll
  • Kirkjubær
  • Vorsabær II

Knapi ársins

  • Allir tilnefndir koma til greina í flokknum knapi ársins.

 

Verðlaunin verða veitt líkt og fyrr segir á uppskeruhátíðinni sem fram fer 12. okt.  Endilega tryggið ykkur miða á hátíðina í tíma!