Uppskeruhátíð 12. október

04.09.2024

Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossbænda leiða saman hesta sína í ár og halda sameiginlega uppskeruhátíð hestafólks. Hátíðin mun fara fram þann 12. október í Gullhömrum. Á dagskránni eru verðlauna afhendingar fyrir okkar fremstu knapa og ræktendur, steikarhlaðborð ásamt frábæri skemmtidagskrá þar sem fram koma Elli og Hlynur, Fríða Hansen, Emmsjé Gauti og Dj Víðir og Dýrið.

Í fyrra seldist upp á hátíðina og hvetjum við því alla áhugasama um að tryggja sér miða í tíma. Miðasala fer fram á heimasíðu LH. Verð á hátíðina er 14.900kr. 

Þeir sem vilja bóka sig saman á borð er bent á að kaupa miðana sína í einni pöntun eða að öðrum kosti senda óskir um sætaskipan á joninasif@lhhestar.is.

Kaupa miða