Upptaka af Sportfengsnámskeiðinu

13.02.2025

Sportfengsnámskeið fyrir mótshaldara var haldið í ársbyrjun.  Upptaka af námskeiðinu er nú aðgengileg hér á síðunni.

Farið var yfir kerfið frá því hvernig kerfið virkar almennt (aðgangur er stofnaður, finna mót, skráning keppenda osfrv) og hvernig það virkar í allri framkvæmd fyrir, á meðan og eftir mót.

Til dæmis var farið ítarlega í stofnum móta og hvernig mótshaldarar tryggja að þau séu rétt skráð s.s. lögleg eða ólögleg. Þá var farið yfir atriði eins og skráningarfrest, setja inn greinar og úrslit. Skráning starfsmanna, dómara, þula og fótaskoðun. Einnig var farið yfir greiðslumöguleika, setja inn verð, búa til dagskrá og setja inn auglýsingar.

Einnig var farið yfir það sem þarf að hafa í huga eftir að skráningarfresti lýkur eins og t.d. að raða í holl, taka út greinar og afskrá keppendur. Sem og það sem þarf að gera á meðan á móti stendur eins og logga inn dómara, leiðrétta rangt innslegnar einkunnir, úrskrá keppendur, skrá spjöld og atvik. En einnig það sem þarf að gera eftir að móti lýkur eins og skrif mótaskýrslu og að loka móti.

Þessi listi er ekki tæmandi og hvetjum við alla sem koma að mótahaldinu til að horfa á námskeiðið hér að neðan.